byggingarleyfi vegna lagareldis.
Virðulegur forseti. Það er auðvitað engum blöðum um það að fletta að þetta er ákaflega bagaleg staða, svo ekki sé fastar að orði kveðið, og kannski rétt að taka það fram hér á þessum tímapunkti að innviðaráðuneytið hefur að beiðni umhverfis- og samgöngunefndar unnið að gerð minnisblaðs um breytta stjórnsýsluframkvæmd í þessum efnum. Ég vonast til að það verði hægt að koma því minnisblaði til nefndarinnar í dag.
Varðandi orð hv. þingmanns um frumvarp það sem væntanlega ratar til Alþingis hið fyrsta, vonandi strax í þessari viku eða þeirri næstu, þá hefur það frumvarp fengið mjög breiða umfjöllun, bæði frá þeim sem sinna lagareldi og eru í þeirri atvinnustarfsemi en líka frá náttúruverndarsamtökum og grasrótarhreyfingum því það er afar mikilvægt að gæta að eins miklu jafnvægi í þeirri starfsemi og nokkurs er kostur. (Forseti hringir.) Ég hef trú á því og tel reyndar að það sé afar mikilvægt að ná utan um löggjöfina í heild og þar með talið þær stjórnsýsluákvarðanir sem af sjálfu leiða.