154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

aðgerðir til eflingar náms í heibrigðisvísindum.

[16:13]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Strax í upphafi kjörtímabilsins settum við þessi mál í forgang og ég ásamt hæstv. heilbrigðisráðherra lögðum fram sameiginlegar forgangsaðgerðir í þágu heilbrigðismenntunar í ríkisstjórn. Þar voru markmiðin mjög skýr. Við ætluðum að fjölga nemendum í læknisfræði úr 60 í 90 í áföngum og þeim mun fjölga strax í 75 núna í haust. Þá vorum við að stefna á fjölgun nemenda í hjúkrunarfræði úr 120 í 150 sem og fjölgun nemenda í hjúkrunarfræði í Háskólanum á Akureyri þar sem það markmið er sett að fjölga þeim í 100 á ári. Að auki var auðvitað sett áhersla á aðrar námsleiðir eins og vímuefnaráðgjöf, félagsráðgjöf, sálfræði o.fl. og sett ákveðin markmið um nýjar leiðir sem og fjölgun í þessum greinum.

Það sem þurfti að vinna til að ná þessum markmiðum var auðvitað aðallega aðstaða skólanna og uppbygging færni- og hermisetra, bæði við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri, svo að þessi fjölgun væri möguleg. Þá hef ég líka breytt fjármögnun háskólans með árangurstengdri fjármögnun þar sem heilbrigðisvísindi eru betur fjármögnuð. Það er grundvallarforsenda til þess að skólarnir geti tekið ákvörðun um fjölgun nemenda. Meðan verið er að innleiða þá kerfisbreytingu höfum við sett sérstakar fjárveitingar til heilbrigðisvísindasviðs HÍ sem og heilbrigðisvísindasviðs HA til þess að geta ráðist í þessa uppbyggingu á aðstöðu sem þörf er á ef við ætlum að ná þessum metnaðarfullu markmiðum.

Það hefur verið margvíslegur stuðningur líka í gegnum samstarf háskóla sem skiptir sköpum. Þar sjáum við að háskólarnir tveir, Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri, ætla að starfa saman að uppbyggingu og deila reynslu sinni og þekkingu til að geta tekið á móti fleiri nemendum og byggt það hraðar upp sem og m.a. samningur sem við skrifum undir vonandi (Forseti hringir.) í næstu viku um að nemendur í hjúkrunarfræði í Háskólanum á Akureyri geti fært sig og lært í Háskóla Íslands.