154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

aðgerðir til eflingar náms í heilbrigðisvísindum.

[16:17]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Með því að setja á fjárhagslega hvata um samstarf háskóla þá komu upp ýmsar nýjar leiðir sem ekki hefðu verið mögulegar áður milli skólanna. Eitt af þeim verkefnum sem ég hef ákveðið að verja um 30 milljónum í er þróun kennslu, náms og vals hjá nemendum í hjúkrun sem er samstarfsverkefni þessara skóla. Markmiðið er mjög skýrt: Að bæta nýtingu námspósta í hjúkrunarfræði og minnka brottfall úr starfi að námi loknu. Þá getum við tryggt að það sé samnýting námskeiða og sameiginleg samkeppnispróf sem er bæði fjárhagslega hagkvæmt en líka eykur þetta jafnræði nemenda sem hv. þingmaður kemur inn á og skiptir miklu máli. Það hefur verið þannig við Háskólann á Akureyri, þar sem nemendum í hjúkrunarfræði hefur fjölgað úr 50 í 75 2021, að þau geta bara ekki tekið við fleirum út af aðstöðu og það þrátt fyrir að fá fjárhagslegan stuðning til þess eða annað slíkt. Þess vegna hef ég sett í algjöran forgang að geta fjárfest hratt í uppbyggingu færni- og hermiseturs sem skiptir öllu máli og ég trúi því og treysti að við getum komið því til starfa haustið 2026 eða í síðasta lagi 2027.