Nýsköpunarsjóðurinn Kría.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um stofnun Nýsköpunarsjóðsins Kríu, með sameiningu tveggja fjárfestingarsjóða á málefni nýsköpunar, annars vegar Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og hins vegar Kríu, sprota- og nýsköpunarsjóðs. Frumvarp þetta er liður í endurskoðun á stuðningsumhverfi nýsköpunar og sjóðaumhverfis í þágu einföldunar og aukinnar skilvirkni og árangurs. Starfandi eru í dag tveir fjárfestingarsjóðir sem hafa það hlutverk að fjárfesta í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum og sérhæfðum sjóðum sem fjárfesta í slíkum fyrirtækjum. Með sameiningu þessara tveggja sjóða er mögulegt að auka slagkraft, samkeppnishæfni, auka samlegð og minnka yfirbyggingu.
Fjárfestingarumhverfi sprotafyrirtækja er síbreytilegt og fjölmargar breytur og hagaðilar hafa þar áhrif. Fjárfestingarsjóðir á Íslandi hafa verið nokkuð vel fjármagnaðir á undanförnum árum, m.a. vegna aðgerða stjórnvalda í þágu nýsköpunar, og talsverð virkni verið í fjárfestingum í íslenskum sprotafyrirtækjum. Nú eru hins vegar teikn á lofti um að sú staða kunni að vera að breytast, m.a. vegna þróunar í efnahagsmálum og breytinga á mörkuðum. Þannig má í skýrslum greiningarfyrirtækja lesa um talsverðan samdrátt í fjölda fjárfestingarsamninga á árinu 2023 miðað við síðustu árin þar á undan.
Mikilvægt er að opinber stuðningur við fjárfestingarumhverfi nýsköpunar sé alþjóðlega samkeppnishæfur og árangursríkur. Aðkoma hins opinbera á að vera sveigjanleg og gagnsæ þannig að í henni felist hvatning og stuðningur þar sem þörfin er mest og möguleikar séu til að bregðast við breyttum aðstæðum. Mikilvægt er að hið opinbera starfi ekki í samkeppni við aðra fjárfestingarsjóði en grípi inn og styðji við frumkvöðlastarf og nýsköpun þegar það á við í því skyni að efla sjálfbæran hagvöxt byggðan á hugviti og þekkingu.
Virðulegi forseti. Með frumvarpinu er lagt til að stofnaður verði nýr sjóður, Nýsköpunarsjóðurinn Kría, sem tekur við hlutverkum, eignum og skuldbindingum bæði Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Kríu, sprota- og nýsköpunarsjóðs. Markmið frumvarpsins er að stuðla að árangursríku og alþjóðlega samkeppnishæfu fjármögnunarumhverfi fyrir sprota- og nýsköpunarfyrirtæki í því skyni að styðja við öflugt atvinnulíf á grunni hugvits og þekkingar og efla þannig vöxt, velsæld og samkeppnishæfni Íslands. Sjóðnum er ætlað að veita stuðning við nýsköpun í formi fjárfestinga og skal sjóðurinn geta beitt fjölbreyttum aðferðum við fjárfestingu í samræmi við stöðu fjármögnunarumhverfisins og stefnu stjórnvalda.
Hinn nýi sjóður hefur það hlutverk að hvetja til og auka framboð fjármagns og fjármögnunarkosta til handa sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum og auka viðnámsþrótt fjármögnunarumhverfisins ásamt því að hvetja með fjárfestingum sínum einkafjárfesta til þátttöku í fjármögnun nýsköpunar. Sjóðnum er ætlað að koma sem viðbót inn í fjárfestingarumhverfið, stækka það og dýpka eftir því sem þörf er á hverju sinni í samstarfi við aðra fjármögnunaraðila. Nýsköpunarsjóðurinn Kría skal hafa hæfilega arðsemi að leiðarljósi án þess þó að vera í beinni samkeppni við þá fjárfesta sem fyrir eru þegar nægilegt framboð af fjármagni er til staðar.
Eitt mikilvægasta verkefni sjóðsins er að meta á hverjum tíma hvernig og á hvaða formi aðkoma hins opinbera að fjármögnunarumhverfinu skuli vera og við það skal stjórn sjóðsins horfa til áherslu á stefnumótun ráðherranefndar Vísinda- og nýsköpunarráðs. Nýi sjóðurinn verður sérstakt stjórnvald sem heyrir undir yfirstjórn ráðherra nýsköpunarmála. Hann mun hafa þriggja manna stjórn með sérþekkingu á málefnum nýsköpunar, fjárfestinga og atvinnulífs. Ráðherra skipar tvo stjórnarmenn að eigin frumkvæði og einn eftir tilnefningu frá Samtökum atvinnulífsins. Lögð verður áhersla á að sjóðurinn haldi tengslum sínum við atvinnulífið í víðtækum skilningi.
Áformað er að sjóðurinn verði fjármagnaður annars vegar með tekjum af sölu eignarhluta og hins vegar með framlögum af fjárlögum á grundvelli 6. gr. fjárlaga, auk þess sem eignasafn og lánasafn núverandi NSA og Kríu komi til með að fylgja með hinum nýja sjóði. Ekki er fyrirséð að nýtt fjármagn verði sett í fjárfestingar á þessu stigi málsins.
Frumvarp þetta hefur verið unnið í ríku samtali við stjórnir þeirra sjóða sem lagt er til að sameina. Þá hefur einnig mikið samráð átt sér stað við hagsmunaaðila í nýsköpunarumhverfinu, auk þess sem ráðuneytið naut aðstoðar og ráðlegginga frá Rolf Kjærgaard, fyrrum forstjóra Vækstfonden í Danmörku, þegar horft var hvernig Norðurlöndin haga sínum málum. Ég er sannfærð um að sameining NSA og Kríu verði heillaspor og að starfsemi sameinaðs sjóðs verði öflug, sameinaður sjóður muni þannig hafa jákvæð áhrif á nýsköpun og nýsköpunarsamfélag á Íslandi ásamt því að skila fjárhagslegri ávöxtun svo tryggja megi frekari stuðning við nýsköpun.
Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og 2. umræðu.