Nýsköpunarsjóðurinn Kría.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fyrir yfirferð sína á fyrirliggjandi frumvarpi sem er hér í dag kynnt sem sameining sjóðanna tveggja, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins annars vegar og Kríu hins vegar. Opinber fjárfesting í nýsköpun skiptir auðvitað mjög miklu máli en eins og með svo margt annað þá skiptir ekki síður máli hvernig við förum að því að ráðstafa sameiginlegum sjóðum okkar. Ég ætla að nýta tækifærið og spyrja hæstv. ráðherra að því hvernig það varð niðurstaðan að það ætti að leggja niður Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins í þeirri mynd sem við þekkjum hann með þeim afleiðingum að það stendur til núna að segja öllum starfsmönnum sjóðsins upp. Er þetta besta leiðin sem þótti vera tiltæk til að ná fram settu takmarki um að efla alþjóðlega samkeppnishæfni okkar?