154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

Nýsköpunarsjóðurinn Kría.

911. mál
[16:29]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það voru ýmsir aðilar sem áttu aðild að stjórnum þessara tveggja stjórna. Þar má nefna Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins, matvælaráðuneytið, ASÍ. Við þessa breytingu, þegar verið er að reyna að einfalda og fækka og tryggja hæfi stjórnarmanna enn betur, sem þurfa auðvitað fyrst og fremst að hafa hæfni til að taka skynsamlegar ákvarðanir, þá var talið að með samráði við ráðherranefnd um Vísinda- og nýsköpunarráð yrði tryggt samstarf við fjölda aðila sem og skynsamlegasta leiðin hverju sinni þar sem stjórnvöld eru að taka stórar ákvarðanir fyrir Ísland til lengri tíma en kjörtímabils. Þess vegna er lagt til að fækka stjórnarmönnum, það er líka hnykkt á hæfi þeirra og þekkingu í lögunum. En það verður auðvitað að tryggja víðtækt samráð sem fer fram í nefndinni svo í kjölfarið. (Forseti hringir.) En ég veit að það eru margir sem vilja halda sínu sæti í stjórn, það er eðli málsins samkvæmt alltaf þannig þegar þeim er fækkað.