154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

Nýsköpunarsjóðurinn Kría.

911. mál
[16:33]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og það er mikilvægt að við horfum vel í þessi atriði þegar svona stórar breytingar eiga sér stað eins og við þessa sameiningu og stofnun þessa sjóðs. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram, og einnig kom hæstv. ráðherra inn á það í sinni ræðu, hæfileg arðsemi. Mig langaði bara aðeins að nota seinna andsvar mitt til að spyrja: Hvað er hæfileg arðsemi?