154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

Nýsköpunarsjóðurinn Kría.

911. mál
[16:34]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er auðvitað arðsemiskrafa á öllum fjárfestingum sjóðsins. Þegar horft er til fjárfestinga í slíkum sjóðum er gerð arðsemiskrafa sem er sambærileg við það sem þekkist hjá öðrum fjárfestum. Þegar við erum að ræða svona beinar áherslufjárfestingar, þá getur verið minni áhersla á arðsemi. Mestu máli skiptir auðvitað að ýta undir að umhverfið hérlendis sé alþjóðlega samkeppnishæft. Það skiptir mestu máli þegar við erum að búa til sjóð eða sameina hér tvo sjóði. Við höfum séð hvað gerðist þegar Kría var sett á laggirnar, það ýtti undir það að fjárfestingar fóru að skila sér í auknum máli í umhverfinu án aðkomu hins opinbera. Það þarf alltaf að huga að því hversu langt eigi að ganga hverju sinni varðandi það hvar ríkið á að vera og hvar ekki. Hérna er í rauninni verið að nota þetta orðalag (Forseti hringir.) vegna þess að það er kannski munur á eftir því hvort þetta eru áherslufjárfestingar eða ekki. Ef fjárfest er í samstarfi við aðra þá eru auðvitað sömu arðsemiskröfur og á markaði en ef það er ekki í samvinnu við aðra þá eru kannski gerðar aðeins minni kröfur um arðsemina.