154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

Nýsköpunarsjóðurinn Kría.

911. mál
[16:40]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Mig langaði kannski að bæta aðeins ofan á þetta í seinna andsvarinu og spyrja hvernig hæstv. ráðherra sér fyrir sér að þessi breyting geti stutt við þann hluta sprotaheimsins sem kannski á erfiðast með að ná í fjármagn akkúrat núna. En það er það sem virðist vera í greinargerðinni kallað stofnfjármögnun eða á ensku, með leyfi forseta, „pree seed“. Hvernig sér hæstv. ráðherra fyrir sér að það sé hægt að auka þetta fjármagn á þessum fyrstu stigum þar sem fólk þarf stuðning, fólk þarf eitthvert fjármagn umfram það sem það getur fengið í dag úr Tækniþróunarsjóði og slíkum sjóðum?