Nýsköpunarsjóðurinn Kría.
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):
Virðulegi forseti. Við erum að reyna að minnka beinar fjárfestingar úr sjóðum hins opinbera þannig að hér er lagt upp með að það sé í undantekningartilvikum og á sviðum þar sem aðrir eru ekki að fjárfesta. En þar er líka mjög fín lína gagnvart því af hverju aðrir eru ekki að fjárfesta á ákveðnum stöðum og það þarf að meta það hverju sinni hvar ríkið á að koma inn, hvar þörfin er og þá kannski frekar eftir áherslur Vísinda- og nýsköpunarráðs. Það eru sérstakar áherslur sem vöntun er á í samfélaginu, t.d. að bæta við lausnum í loftslagsmálum eða gervigreindarmálum eða öðru slíku, einhverjar samfélagslegar áherslur. En við erum að reyna að draga úr því sem kannski hefur verið meira gert af í Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, að vera í þessum beinum fjárfestingum, heldur búa til öðruvísi stuðning sem ýtir frekar undir sterkt og öflugt og árangursríkt fjárfestingarumhverfi en drögum úr og höfum það í undantekningartilvikum að sjóðurinn sé að fara í beinar fjárfestingar. (Forseti hringir.) Varðandi „pree seed“ þá er það auðvitað stöðugt verkefni og tengist auðvitað því sem ég fór hér yfir.