154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

Nýsköpunarsjóðurinn Kría.

911. mál
[16:43]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Það er ánægjulegt að við séum enn á ný að fjalla um nýsköpunarmál og stuðning við nýsköpunarfyrirtæki hér innan veggja Alþingis. Þessi málaflokkur fékk ágæta umræðu í miðju Covid þar sem menn sáu þetta sem leið til að styðja við uppbyggingu sprotafyrirtækja á meðan við værum að ganga í gegnum erfiðleika í efnahagnum. En málið er hins vegar að þetta er hlutur sem við eigum sífellt að vera að styðja því sprotafyrirtækin, mjög mörg, skila okkur ansi góðri ávöxtun inn í samfélagið. Við sjáum það nú bara best með okkar fyrsta einhyrning, eins og það er kallað, fyrirtækið Kerecis sem er með höfuðstöðvar á Ísafirði og hvað það er að gera. En þetta tekur allt sinn tíma. Það er kannski þar sem vandamálið liggur í þessu umhverfi sem núverandi ríkisstjórn hefur sett upp fyrir sprotafyrirtækin. Við erum með fjármagn í gegnum sjóði þegar þau eru komin aðeins lengra en þegar þau eru að byrja þá er einmitt erfiðast fyrir fólk að ná í fjármagn. Það er nefnilega líka þannig að hér á Íslandi er mjög frumstætt net englafjárfesta, eins og þeir kallast, einstaklingar sem eru að fjárfesta í sprotafyrirtækjum. Flestir þessara englafjárfesta eru aðilar sem koma úr sprotageiranum, hafa kannski náð að gera sitt fyrirtæki að einhverju og fengið fjármagn í staðinn til baka þegar þeir seldu fyrirtækið og eru í rauninni nokkurn veginn, getum við sagt, að borga til baka til samfélagsins með því að hjálpa sprotum og frumkvöðlum að taka þessi fyrstu skref.

Það hefur svo sem margt gerst þegar kemur að stuðningsumhverfinu. Það er fjallað hér um m.a. í þessu frumvarpi að þessum nýja sjóði verður heimilt að vera í samvinnu við aðila eins og t.d. KLAK – Icelandic Startups sem hafa lyft grettistaki hér á landi í stuðningi við nýsköpunarfyrirtæki. Ég hefði viljað sjá meiri stuðning frá ríkinu einmitt til þeirra aðila því þar hefur því virkilega verið lyft upp sem er verið að gera til að aðstoða frumkvöðla, sérstaklega þá sem eru að stíga sín fyrstu skref. Ég held að það mætti alveg skoða það t.d. hvort ekki sé hægt að koma á einhvers konar stuðningi í gegnum Kríu við það þegar englafjárfestar eru að fjárfesta í fyrirtækjum snemma eða í upphafi. Það er nefnilega þannig á flestum Norðurlöndunum og víða um heim að þar koma englafjárfestarnir oft saman sem hópur inn í fjárfestingar og geta þannig dreift fjármagninu sem þeir eru með á fleiri fyrirtæki. Þar gæti t.d. verið hægt að hugsa sér eitthvað eins og það að þegar hópur englafjárfesta kemur inn einhvers staðar þá geti Nýsköpunarsjóðurinn Kría komið inn með 30% inn í það. Það gæti verið ein leið til að auka aðgengi að því fjármagni sem er.

Síðan eru það vísisjóðirnir. Það eru ekki margir vísisjóðir hér á landi starfandi og þar af leiðandi er oft erfitt fyrir frumkvöðla að nálgast fjármagn. Það eru einhverjir fjórir, fimm sjóðir sem þú getur labbað til og bankað upp á og kynnt fyrir og ef þeir segja nei er ansi fátt um fína drætti. Margir af þessum sjóðum sem við erum með í dag eru með mismunandi fjárfestingarstefnu og eru kannski ekkert að fjárfesta sérstaklega í fyrstu skrefum sprotafyrirtækja. Þar held ég að sé einmitt mikilvægt að horfa til þess að lækka þessa upphæð sem hefur verið viðmiðun hingað til, 4 milljarðar. Það er alveg hægt að búa til öflugan sjóð, lítinn sjóð sem er að fjárfesta í þessum fyrstu skrefum og þú ert kannski ekki með nema milljarð í sjóðnum. Þú ert þá kannski að koma með 20–30 milljónir inn í hvert fyrirtæki.

Það eru svona tækifæri sem við þurfum að vinna í þegar við förum í gegnum það að vinna með þennan nýsköpunarsjóð og tryggja að við séum að styðja við það umhverfi þar sem mest er þörfin. Það er ánægjulegt að sjá það sem hæstv. ráðherra benti á, það er leyft að fjárfesta líka í sjóðum sem eru fyrir utan Ísland, það opnar á tækifæri til að taka þátt í t.d. norrænum sjóðum. Þá geta einmitt norrænir aðilar dregið norræna fjárfesta inn í sprotafyrirtæki sem þeir sjóðir eru að búa til.

Það var mikið talað um það hér í andsvörum áðan hvernig skipa ætti í stjórnina og þar lýsti hæstv. ráðherra því yfir að mikilvægt væri að skipa í stjórn og skipa í starf forstjóra miðað við hæfi. Mig langar að hvetja hæstv. ráðherra til að standa virkilega við þau orð. Við þurfum fólk með reynslu og þekkingu og skilning á nýsköpunarumhverfinu til að vera einmitt í stjórn og forsvari fyrir svona sjóð. Það hefur því miður tíðkast í allt of mörgum hlutum þegar verið er að skipa í stjórnir og ráð að það sé kannski ekki alltaf horft á hæfni heldur frekar hverja menn kusu eða hvar þeir standa í flokki eða öðru. Ég bara virkilega hvet hæstv. ráðherra til að sýna að það er hægt að skipa miðað við hæfni og þekkingu.

Mig langar líka að hvetja til þess að við ræðum þessi nýsköpunarmál oftar hér á Alþingi og myndi hvetja hæstv. ráðherra til þess að vinna að því að kannski einu sinni á ári kæmi nýsköpunarráðuneytið með skýrslu eða kynningu hér á þingi um hvað er að gerast í nýsköpunarmálum á Íslandi. Ég held að það gæti verið góð leið til þess að opna augu fleiri þingmanna fyrir því hvað er að gerast í nýsköpunarmálum á Íslandi. Maður hefur tekið eftir því hérna innan þingsins að jú, það er flott að skreyta sig með orðinu nýsköpun, nota það einhvers staðar, en þegar kemur að áhuga á því hvað er raunverulega að gerast innan þessa samfélags þá eru ansi fáir sem sýna hann.

Ég held að ég láti þetta duga að sinni. Mig langar bara að benda forseta á að mér finnst alltaf jafn skrýtið þegar nýsköpunarmál fara annað heldur en inn í atvinnuveganefnd þar sem nýsköpunarmálin eiga heima. Ég skil að þetta er einhver sjóður en þetta er nýsköpunarmál en ekki eitthvað skatta- eða gjaldamál. Ég ætla ekki að tefja málið innan þingsins með því að leggja til að það fari í aðra nefnd en ég held að þingið og ráðuneytin ættu að vinna að því að öll nýsköpunarmál fari á sama stað. Við fengum hér fyrir stuttu áætlun um þekkingarsamfélagi sem lenti inni í allsherjar- og menntamálanefnd, sem er þegar með allt of mikið á sinni könnu. Ég held að það væri betra að dreifa þessu aðeins jafnar á allar nefndirnar.