154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

Nýsköpunarsjóðurinn Kría.

911. mál
[16:53]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessi jákvæðu viðbrögð. Fyrst langar mig kannski að nefna það að englafjárfestum á Íslandi hefur fjölgað verulega og það er vel. Mér skilst að það sé í undirbúningi að búa til samtök englafjárfesta og svo styðjum við í nýsköpunarráðuneytið verulega við KLAK sem er mjög margvíslegur stuðningur og skiptir máli að sé á þeirra forræði.

Síðan langar mig að benda á að það er mjög skýrt og nýtt auðvitað í þessu frumvarpi að sjóðurinn getur veitt mótframlagslán sem eru þá breytanleg lán til fyrirtækja en jafnframt er krafist fjármögnun annars aðila, eins og englafjárfestis. Um er að ræða þá englafjárfesti sem áður hefur verið vottaður og þá getur sjóðurinn veitt lán á móti fjárfestingu frá umræddum fjárfesti. Þarna erum við að prófa að fara nýja leið sem hefur reynst vel erlendis til að koma til móts við þennan hóp sem týnist oft aðeins á milli þess að fá stuðning úr Tækniþróunarsjóði og áður en hann getur farið í stærri fjárfestingar.

Svo hefur vísisjóðum líka farið fjölgandi og við í ráðuneyti nýsköpunarmála erum að reyna að greina áhrif aðgerða, stöðu nýsköpunarumhverfisins betur með mælanlegum markmiðum og þróun. Við erum í mikilli gagnavinnu og við þurfum að miðla þeim niðurstöðum síðan bæði inni á þingi en ekki síður til almennings með betri hætti. Ég bara þakka þessa hvatningu hv. þingmanns og held líka svo sem að breytingarnar á Vísinda- og nýsköpunarráði og um skýrslugjöf sem ég mun koma hér með árlega frá þeim skipti máli til að ræða hlutina aðeins í stærra samhengi og um framtíðina.

Ég þakka síðan hv. þingmanni fyrir umræðuna um hæfi stjórnarmanna. Ég skil reiði ýmissa aðila yfir að vera ekki lengur í stjórn en það skiptir öllu máli að þarna séu frekar færri með mikla og góða og haldbæra þekkingu sem koma að þessum ákvörðunum en að fjöldi fólks komi að þessari stjórn.