Nýsköpunarsjóðurinn Kría.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma í andsvar og fyrir þær ábendingar sem hæstv. ráðherra kom með. Mig langar að segja aðeins varðandi breytanlegu lánin að það þarf að passa það svolítið þegar verið er að vinna í þeim að breytanlegu lánin séu ekki þannig að þau séu of íþyngjandi fyrir frumkvöðlana sjálfa, þ.e. að þau setji frumkvöðlana sjálfa ekki í of mikla hættu við að taka þessa áhættu, vegna þess að það að fara í sprotavinnu er alltaf áhætta. Það er mikilvægt að ríkið hjálpi til við að taka hluta af þeirri áhættu á sig vegna þess að það eru margar góðar hugmyndir sem koma upp hjá fólki og allt of margar þeirra, því miður, deyja drottni sínum vegna aðgengis að fjármagni. Þar vildi ég sérstaklega benda á að það vantar fjármagn sem tengist samfélagslegum málefnum. Það er nefnilega þannig að ef þú vilt vera í því að búa til næsta Instagram þá virðist vera nóg af peningum en ef þú vilt t.d. búa til hugbúnað sem hjálpar til við að takast á við heimilisofbeldi þá er erfitt að finna fjármagnið. Við þyrftum að hugsa leiðir til þess, frú forseti, að styðja líka við þessi málefni.