Nýsköpunarsjóðurinn Kría.
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa umræðu. Það er alveg rétt, og það kemur fram í þessu frumvarpi, að ráðherra mun síðan skilgreina frekar í reglugerð þá lánamöguleika sem þessi sameiginlegi sjóður gæti borið og hvernig þessi mótframlagslán yrðu þá. Við erum auðvitað að stefna að því að lánaformin verði sveigjanleg en taki ekki síst mið af alþjóðlegri þróun; hvað er að gerast í heiminum og hvernig getum við tryggt það að við séum samkeppnishæf, að hér sé gott að koma með hugmynd og búa til fyrirtæki og það sé stuðningur því að eins og ég lýsi stundum nýsköpun þá eru hugmyndir bara litlir fuglar sem við hjálpum að fljúga af því að margir verða svo stórir og tryggja hér hagvöxt og velsæld til lengri tíma fyrir íslenskt samfélag. Og breytilegu lánin mega ekki vera of íþyngjandi og verða auðvitað að vera með sömu forsendum og meðfjárfestirinn leggur upp með svo að það skili þeim árangri sem þessi lán eigi að gera. En ég þakka annars bara hv. þingmanni fyrir áhugann á málinu.