154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

Nýsköpunarsjóðurinn Kría.

911. mál
[17:04]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Mig langar eiginlega bara til þess að nýta þetta tækifæri til að ræða samfélagslega nýsköpun almennt. Mér finnst skorta ótrúlega mikla áherslu á samfélagslega nýsköpun þegar við erum að ræða nýsköpun og ég sé það hvergi í neinum áherslum sem fylgja þessu frumvarpi sem hæstv. nýsköpunarráðherra er að koma með. Þegar kemur að nýsköpun og sprotafyrirtækjum fer þátttaka kvenna vaxandi en konur eru nú 34% þátttakenda í íslenskum sprotafyrirtækjum. En þegar kemur að fjármögnun þá eiga verkefni undir forystu kvenna ótrúlega erfitt með að tryggja fjármögnun, sérstaklega með vísifjárfestingum. Árið 2022 fóru bara 7% af slíkum fjárfestingum til teyma undir forystu kvenna. Það er ábyrgðarhluti að skoða vel hvað það er sem veldur því og beita slíkum sjóðum til að styrkja í mun meiri mæli hugmyndir og verkefni kvenna. Konur eru líklegri til að leiða samfélagsdrifin verkefnin en karlar og við verðum vör við þetta þegar við skoðum t.d. þátttökuhlutfall kvenna í samfélagshröðlum, en þátttakan þar er mjög mikil.

Raunverulega áskorunin sem konur standa frammi fyrir er að skala upp lausnirnar, afsakið slettuna, forseti, mér datt ekkert annað orð í hug akkúrat núna, því að áhersla vísisjóða er á fyrirtæki sem geta stækkað hratt á erlendum mörkuðum. Í flestum tilfellum eru það tækni- og hugbúnaðarfyrirtæki en hönnun og félagsleg nýsköpun er ólíklegri til að fá styrki. Ég velti því fyrir mér hvort rót vandans sé í raun verðmætakerfið okkar, gildi sem eru samgróin fjármálakerfinu og þar af leiðandi samfélaginu okkar. Fjármálakerfið okkar metur og nærir eiginleika sem jafnan hafa verið taldir karllægir umfram eiginleika sem hafa verið taldir kvenlægir. Þessir eiginleikar eru í raun ótengdir kyni því við erum öll blanda af öllum þessum eiginleikum en við höfum tilhneigingu til að heimfæra það á kyn og skilgreina kynin í raun út frá þessum gildum. En þessi gildi skipta máli. Þegar við hugsum um leiðtoga þá hugsum við: Ráðríkur, sterkur, sjálfstæður, staðfastur, hugrakkur, nýjungagjarn, og svo hugsum við um karlmann. En konur geta verið allt þetta líka, alveg eins og karlar geta verið tilfinningaríkir, samvinnuþýðir, nærandi, viðkvæmir, umhyggjusamir og auðmjúkir. Góður leiðtogi ætti sannarlega að hafa alla þessa eiginleika til jafns en kerfið okkar metur ekki tilfinningar, varnarleysi og umhyggjusemi. Það metur ekki félagslega nýsköpun, rétt eins og það metur ekki umönnunarhagkerfið.

Það er erfitt að koma með nýjan hugsunarhátt í mjög rótgróið, hlutdrægt og staðnað kerfi sem hefur þann eina tilgang að vaxa hratt og hjálpa örfáum að græða fullt af peningum. En við verðum að ögra þessum kerfum og breyta þeim frekar en að leyfa þeim að breyta okkur. Við ættum einmitt með frumvarpi eins og því frumvarpi sem ráðherra er að koma með núna að leggja áherslu á, með sjóð eins og Nýsköpunarsjóðinn Kríu, að fjárfesta í breytingum í átt að kerfi sem snýst um að þróa og hlúa að mannlegum hæfileikum og ástríðu frekar en að framleiða og selja fullt af hlutum sem við í raun þurfum ekki neitt. Framboð og eftirspurn endurspeglar ekki þörf. Umönnunarhagkerfið gerir það svo sannarlega en það hefur engu að síður verið mjög vanmetið og oft sleppt úr hagkerfinu. Það er einmitt drifið mestmegnis áfram af konum og ólaunuðum störfum kvenna því að hagkerfið okkar og samfélagið metur það einskis.

Forseti. Samfélagsleg nýsköpun snýst einmitt um að þróa og innleiða nýjar hugmyndir sem miða að því að taka á samfélagsmálum og koma á jákvæðum félagslegum breytingum, stór og mikilvæg skref í átt að því að fjárfesta í konum og styðja félagslegt frumkvöðlastarf þeirra. Þannig erum við að búa til markað fyrir þær til að blómstra og vinna að framförum samfélagsins. Opinberar fjárfestingar í nýsköpun hafa skilað okkur stórkostlegum framförum, svo sem GPS, internetinu, snertiskjám, allt gert fyrir opinbert fé og hefur skapað risastóra markaði. Ímyndum okkur að við setjum þessa fjármuni í að leysa stærstu áskoranir sem við stöndum frammi fyrir sem samfélag.

Þegar við fjárfestum í konum og í samfélagslegri nýsköpun erum við að fjárfesta aftur í samfélaginu og leggja grunninn að jafnvægi í velferðarhagkerfinu eða velsældarhagkerfinu eða hvað sem við viljum kalla það, í velferð. Félagsleg nýsköpun getur tekið á sig ýmsar myndir. Það getur verið ný tækni, ný viðskiptamódel, nýjar stefnur og áætlanir, ný þjónusta eða annað frumkvæði sem hefur áþreifanleg áhrif til að bæta líf fólks og vellíðan samfélagslega. Á Íslandi eru yfir 90% allra framtakssjóða — eða hvort það er framtakssjóður, ég held að ég sé að tala um vísisjóði — fjármagnaðir af lífeyrissjóðum eða Kríu og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins sem báðir eru fjármagnaðar af ríkinu og rennur stærsti hluti þeirra fjármuna til karla. Það eru þess vegna mörg tækifæri fyrir hið opinbera til að styðja við félagslega nýsköpun. Þá má nefna að skylda sjóði til að taka upp fjölbreytileikastefnu og þegar kemur að fjárfestingum ættu sérstaklega opinberar fjárfestingar að endurspegla þjóðfélagið. Önnur leið væri að auka fjölbreytni hjá stjórnendum þessara fjárfestingarsjóða og færa opinbert fjármagn til sjóða sem endurspegla samfélagið. Önnur mikilvæg breyting væri að breyta markmiðum sjóðanna, bæði Kría og Nýsköpunarsjóður einblína á hlutlægan vöxt, vöxt vinnumarkaðarins og hávaxtarfyrirtæki. Ég held að það sem við þyrftum að gera núna og væri öflug leið til framtíðar væri að hugsa hvernig við getum tekið þetta opinbera fé og í raun stýrt því í átt að samfélagslegri nýsköpun. Þannig held ég að við getum lyft konum og þeirra hugmyndum líka upp og það skiptir gríðarlega miklu máli fyrir samfélagið og fyrir framtíðina.