Nýsköpunarsjóðurinn Kría.
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):
Virðulegi forseti. Mig langar bara að nýta tækifærið og koma aðeins upp af því að hv. þingmaður lagði hér upp með mjög mikilvæga umræðu um jafnréttismál í nýsköpun. Það skiptir gríðarlega miklu máli að við setjum þau meira á dagskrá og ræðum þá alvarlegu stöðu sem er í raun þar uppi. Við settum inn smá greiningu um þessi hreinu kvennateymi, sem eru 20% af þeim sem fengu fjármögnun t.d. yfir árið 2023, og þarna er bara ótrúlega mikilvægt að gera betur. Í þessu frumvarpi sérstaklega þá hefur Nýsköpunarsjóðurinn Kría ákveðin tækifæri og getur stutt með beinum og óbeinum fjárfestingum verkefni sem leidd er af konum en falla auðvitað líka undir áherslur fjárfestingar. Á sama tíma var ákveðið að setja ekki inn í frumvarp neinar áherslur um sérstök mál eins og hér eru rædd líka, þessar samfélagslegu áherslur ýmiss konar, heldur er það gert af sérfróðum aðilum sem sitja í Vísinda- og nýsköpunarráði og frekar vísað til þeirra áherslna sem þar koma fram. Þar er verið að leggja áherslu á samfélagslega nýsköpun, jafnréttismálin líka sem og stórar áskoranir sem Ísland stendur frammi fyrir. Ég taldi því vænlegra að hér sé eins almennt frumvarp og hugsast getur gagnvart stuðningi við nýsköpun sem eldist vel og vísað til síðan sérfræðikunnáttu þeirra sem sitja í Vísinda- og nýsköpunarráði hverju sinni varðandi ákveðna stefnumótun í nýsköpun sem þörf er á fyrir samfélagið á hverjum tíma. Síðan er það stórt verkefni í nýsköpun og jafnréttismálum að fjölga konum í STEM-greinum, tækni og gervigreind og tryggja samkeppnishæfni í stóru myndinni (Forseti hringir.) sem þyrfti að ræða hér sérstaklega, en ég næ bara að fara stutt yfir undir þessum lið.