Nýsköpunarsjóðurinn Kría.
Forseti. Það er ótrúlega jákvætt að heyra að þetta séu áherslur sem verða settar en það er náttúrlega ótrúlega vont eða erfiðara fyrir okkur, löggjafann, að átta okkur á því hverjar áherslurnar eru ef þær koma ekki fram í frumvarpinu sjálfu. Þetta er í raun og veru líka dálítið pólitískt mál af því að það snýr að því hver pólitíska stefnan er; verður aukin áhersla á hraðan vöxt til að græða sem mest eða verður hún á að tryggja að það fari meira fé í þá nýsköpun sem er hugsuð til þess að byggja upp samfélagið en sem er kannski ekki jafn gróðavænleg á stuttum tíma heldur meiri langtímasýn? Það er eitthvað sem ég hefði verið til í að sjá fjallað betur um í frumvarpinu til þess að það væri aukinn skilningur á því hvernig hæstv. ráðherra hugsar þennan sjóð. Auðvitað á það að vera í höndum sérfræðinga að miklu leyti að ákveða þetta en þessi stefna skiptir máli, að hún sé skýr. En það er gott að heyra ráðherra segja hérna að það eigi að vera aukin áhersla á samfélagslega nýsköpun því að það hefur ekki verið það hingað til.