154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

Nýsköpunarsjóðurinn Kría.

911. mál
[17:14]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er ekki hægt að mínu mati að skipta fyrirtækjum upp í þannig einfalda sviðsmynd að einhver séu til að byggja upp samfélagið og önnur séu bara fyrir gróða. Það er algjörlega ljóst að þau fjölmörgu fyrirtæki sem hafa fengið stuðning úr hinu opinbera nýsköpunarumhverfi eru orðin það stór í dag að þau borga samfélaginu okkar margfalt til baka þó að þau séu ekki að byggja upp einhverja ákveðna innviði eða þætti sem eru samfélagslegar áskoranir fyrir Ísland, heldur gera þau það með verðmætasköpun sem við nýtum síðan í velferðarkerfið hér og menntakerfið og uppistöðu lands og þjóðar. Það er líka hættuleg leið finnst mér að ætla að fara að ákveða hvert Ísland eigi að stefna í nýsköpun. Ég vil helst að umhverfið sé almennt og gagnsætt og styðji við hugmyndir einstaklinga sem koma fram án þess að ríkið sé að ákveða nákvæmlega í hvaða átt það á að fara. Síðan erum við með ákveðnar áherslufjárfestingar sem og ákveðnar áherslur í Tækniþróunarsjóði og hinum ýmsu sjóðum sem ég hef líka verið líka að vinna með, eins og Fléttuna núna þar sem við erum að reyna að innleiða nýsköpun í heilbrigðiskerfið til að bæta innviði heilbrigðiskerfisins, létta á heilbrigðisstarfsfólki og efla þjónustuna, svo eitt dæmi sé tekið úr svona áherslusjóði sem er samfélagslega mikilvægur þar sem við erum þá að nýta tækni og hugvit til uppbyggingar á íslensku samfélagi og mæta samfélagslegum áherslum.

Varðandi eitt sem var komið inn á áðan af hv. þingmanni þá er líka búið að ræða aðeins arð af fjárfestingum og ég gleymdi að nefna að hann er settur í nýfjárfestingar þannig að það er stutt við fjárfestingarumhverfið fram í tímann með því hvernig þessi sjóður er byggður upp.