Nýsköpunarsjóðurinn Kría.
Forseti. Ég er svo sem ekkert alveg ósammála hæstv. ráðherra. Ég held að það sé bara mikilvægt að að gera bæði, að það sé mikilvægt að hafa jafnvægi í þessu. Mér finnst allt í lagi að framkvæmdarvaldið og löggjafinn setji fram sína stefnu um hvert eigi að beina opinberu fé, ákveði hvert opinbera féð eigi að fara: Hvert ætlum við að beina því til að styðja við og styrkja samfélagið og hvernig ætlum við að lyfta konum upp þegar kemur að sprotafyrirtækjum kvenna og nýsköpun? Það er allt í lagi að tala um það og móta stefnu án þess að við séum að taka fram fyrir hendurnar á einum eða neinum. En ég held að þetta sé bara mikilvæg umræða og það er gott að heyra frá ráðherra að hún sé að huga að þessu líka og ég vona svo innilega að það endurspeglist í þeim fjárfestingum sem þessi sjóður mun fara í.