frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna. Frumvarpið innleiðir ákvæði reglugerðar ESB 2018/1807, um ramma um frjálst flæði ópersónugreinanlegra upplýsinga í Evrópusambandinu, sem hér eftir verður vísað til sem reglugerðar um frjálst flæði.
Stafvæðing samfélagsins eykst með hverju árinu. Upplýsingar eru meðal mikilvægustu auðlinda upplýsingasamfélagsins og miðlun gagna með ábyrgum hætti er ein af forsendum þjónustu, velsældar og framfara. Í því frumvarpi sem mælt er fyrir er sett fram meginregla um frjálst flæði gagna á innri markaði EES, en sú meginregla var staðfest um persónuupplýsingar með lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, sem innleiddu reglugerð ESB frá 2016/679. Þar kom fram að aðildarríki megi ekki takmarka frjálsa miðlun persónuupplýsinga innan EES með vísun í vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu þeirra. Með meginreglunni um frjálst flæði gagna, óháð því hvort um persónuupplýsingar er að ræða eða ekki, er stuðlað að skýrum, heildstæðum og fyrirsjáanlegum lagaramma um vinnslu gagna og jafnframt að samkeppnishæfu gagnahagkerfi.
Það eru einkum tvenns konar hindranir sem standa í vegi fyrir hreyfanleika gagna á innri markaði EES. Í fyrsta lagi eru það kröfur sem aðildarríki hafa sett um staðsetningu gagna á tilteknu landsvæði eða yfirráðasvæði og í öðru lagi lagaleg samningsbundin eða tæknileg atriði sem hindra eða koma í veg fyrir að notendur gagnavinnsluþjónustu flytji eigin gögn frá einum þjónustuveitanda til annars.
Áformað er að lögfesta reglugerð um frjálst flæði í heild sinni samkvæmt 2. gr. frumvarpsins, en þar er um að ræða nýja lagasetningu. Er sú leið farin að setja inn í frumvarpið efni nokkurra kjarnaákvæða reglugerðarinnar til að gera hana aðgengilegi fyrir almenning og auðveldara sé að átta sig á efni hennar. Ekki er gengið lengra en lágmarksákvæði reglugerðarinnar kveða á um.
Virðulegur forseti. Helstu nýmæli í því frumvarpi sem hér er lagt fram eru eftirfarandi:
Sett er fram sú meginregla að stjórnvöldum sé óheimilt að kveða á um að vinnsla gagna sé takmörkuð við tiltekið svæði innan EES nema slíkar kröfur séu rökstuddar á grundvelli almannaöryggis og í samræmi við meðalhófsreglu. Þá tekur frumvarpið ekki til starfsemi sem fellur utan gildissviðs EES-samningsins eins og þjóðaröryggis.
Í öðru lagi, í samræmi við meginregluna, skal fella úr gildi kröfur í lögum og stjórnvaldsfyrirmælum um staðsetningu gagna sem ekki byggja á almannaöryggi og tilkynna Eftirlitsstofnun EFTA um þær kröfur sem stjórnvöld telja að eigi við rök að styðjast.
Í þriðja lagi skulu stjórnvöld upplýsa Eftirlitsstofnun EFTA um hugsanlega nýja kröfu um staðsetningu gagna sem sett er með lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum. Stjórnvöld skulu hafa aðgengilegt yfirlit yfir þær kröfur um staðsetningu gagna sem eru í gildi í lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum og stjórnvöld skulu einnig tilnefna einn tengilið til að hafa samskipti og samstarf við mótaðila í öðrum EES-ríkjum. Í frumvarpinu er lagt til að háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið sinni þessu hlutverki en fátítt er að kröfur um staðsetningu gagna séu settar af stjórnvöldum og einfalt er að birta lista yfir þær á island.is. Lögbær yfirvöld í EES-ríkjunum geta óskað eftir aðgangi að gögnum sem eru staðsett í öðru EES-ríki eða geymd eða unnin í skýinu og krafist er vegna opinberra starfa þeirra. Í flestum tilvikum er þegar í gangi alþjóðlegt samstarf í gegnum samninga um gagnkvæma stjórnsýsluaðstoð í skattamálum t.d. og þátttöku í Europol og þannig samstarf með stoð í reglugerðinni ætti að heyra til undantekninga.
Í fjórða lagi í frumvarpinu, með stoð í fyrrgreindri reglugerð, skal framkvæmdastjórn ESB stuðla að því að settar verði valkvæðar hátternisreglur sem ætlað er að auðvelda notendum að skipta á milli gagnavinnsluþjónustuaðila og stuðla þannig að samkeppnishæfu gagnahagkerfi. Reglurnar eru aðgengilegar á vefsíðu swipo.eu, en það stendur fyrir Switching Cloud Providers and Porting Data hjá Evrópusambandinu og er vettvangur hagsmunaaðila sem þróaði hátternisreglurnar.
Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að því verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og 2. umræðu.
(Forseti (OH): Forseti heyrir að hæstv. ráðherra talar um efnahags- og viðskiptanefnd á meðan handrit forseta segir allsherjar- og menntamálanefnd. (Háskrh.: Komumst við ekki bara að þessu í sameiningu?) Við komumst að niðurstöðu í sátt um þetta mál.)