frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa brýningu. Ég er sammála þessum sjónarmiðum. Það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að tækni- og upplýsingatæknimálin hjá okkur séu í góðum skorðum. Við höfum gefið verulega í þar og erum orðin vel samkeppnishæf, gott ef við erum ekki í fjórða og sjötta sæti meðal landa þegar kemur að nýtingu upplýsingatækni hjá hinu opinbera. Síðan erum við auðvitað með netöryggismálin þar sem við erum líka að skoða hvað þarf að vera innan lands ef Ísland yrði allt ótengt, ef skorið yrði hér á alla kapla við umheiminn, hvernig og hvað þarf að virka. Við erum að áætla að gera slíka æfingu sem er partur af netöryggisaðgerðaáætlun sem við settum á fót í fyrra og erum að fylgja eftir og það krefst þess að Ísland taki slíka æfingu til að átta sig á hvar vankantarnir eru gagnvart gögnum sem þurfa að verða aðgengileg komi slíkt upp. En síðan er það auðvitað hinn endinn á þessu spennandi máli sem eru opin gögn og nýting opinna gagna hjá hinu opinbera gagnvart öllum hinum gögnunum sem eiga einmitt að vera opin til að hér geti komið frumkvöðlar og fólk með stórar hugmyndir að lausnum, hvort sem þær snúa að rekstri ríkisins eða öðrum samfélagsáskorunum sem við glímum við. Það skiptir öllu máli að hér séu opin gögn í meira mæli og við erum að vinna að stefnu um slíkt líka.