Menntasjóður námsmanna.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020. Í frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum um Menntasjóð námsmanna en sjóðurinn var stofnaður með lögum árið 2020 og kom í stað Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Með lögunum voru gerðar mjög stórar breytingar á námslánakerfinu en markmið þeirra var, eins og eldri laga um Lánasjóð íslenskra námsmanna, að tryggja landsmönnum jöfn tækifæri til náms með því að veita fjárhagslega aðstoð í formi námslána og styrkja. Nýju lögin fólu m.a. í sér þá breytingu að námsmenn ættu möguleika á að hluta námslána yrði breytt í styrk en á sama tíma dró verulega úr niðurgreiðslu hins opinbera á vaxtakjörum námsmanna á móti.
Með þessu frumvarpi er lögð til rýmkun á skilyrðum fyrir þennan námsstyrk þannig að námsmenn geti fengið styrk vegna eininga af tveimur námsleiðum í stað einnar áður. Þá eru líka lagðar til breytingar sem snúa að því hvernig fjármögnun Menntasjóðs námsmanna skuli háttað og síðast en ekki síst eru lagðar til breytingar sem felast í því að afnema ábyrgðarmannakerfi námslána að fullu.
Í ákvæði til bráðabirgða VIII í lögum um Menntasjóð námsmanna, er kveðið á um að lögin skuli endurskoðuð innan þriggja ára frá því að þau koma til framkvæmda og ráðherra skuli kynna niðurstöður endurskoðunar á haustþingi 2023. Nýju lögin tóku gildi í júlí 2020 og komu því til endurskoðunar í fyrra. Ég lagði fram skýrslu um mat á endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna og hún var til umræðu hér í þingsal í lok febrúar. Þar kemur fram að þörf er á mörgum og miklum breytingum á umhverfi námsmanna. Í skýrslunni kemur fram að mun færri námsmenn hafa nýtt sér námsstyrki en áætlanir gerðu ráð fyrir. Ýmislegt kann að hafa valdið þessari þróun, m.a. mögulegur vöxtur atvinnulífsins en ávallt fara færri í nám þegar uppgangur er í hagkerfinu. En hvað sem því líður þá eru það mun færri sem nýta sér styrkina en áætlanir gerðu ráð fyrir og vísbendingar um að breytingarnar sem gerðar voru með hinum nýju lögum hafi ekki náð að skila sér nægilega vel til að tryggja markmið sjóðsins um að tryggja öllum þeim sem falla undir lögin jöfn tækifæri til náms án tillits til efnahags og stöðu að öðru leyti,
Það var talið mikilvægt að fara í meiri breytingar en væntingar stóðu mögulega til eftir að svo ný lög höfðu verið samþykkt og stutt reynsla skapast af þeim, en ég taldi þó rétt að koma hér inn með nokkrar breytingar strax til að bæta umhverfið nú þegar. Ég hef líka sett af stað vinnu við endurskoðun laganna í takti við skýrsluna og fleiri ábendingar sem þurfa meira tíma og rými til að átta okkur á því hvernig við ætlum að hafa stuðningskerfi námsmanna til lengri tíma og af hverju lögin sem voru sett hér í þverfaglegu samráði eftir margra ára vinnu hafi ekki reynst betur en raun ber vitni.
Rétt er að taka fram að við gerð þessa frumvarps var lögð áhersla á samráð eins og við gerð skýrslunnar. Það voru haldnir samráðsfundir, námsmenn komu á framfæri áherslum sínum varðandi frumvarpið, það var unnið í samráði við stjórn Menntasjóðs námsmanna, fjármála- og efnahagsráðuneytið og Seðlabanka Íslands auk þess sem það var birt í samráðsgátt stjórnvalda.
Eitt af því sem kannski helst hefur verið gagnrýnt í hinu nýju kerfi snýr að endurgreiðslufyrirkomulagi námslána sem var ákveðið í lágvaxtaumhverfi en gjörbreyttar aðstæður í efnahagsmálum hafa dregið fram annmarka þess. Um 78% námsmanna í hinu nýja kerfi hafa valið óverðtryggða vexti sem eru breytilegir í samræmi við 18. gr. laganna og þeir hafa hækkað skarpt síðastliðin misseri. Mikil óvissa felst í því fyrir námsmenn að vaxtastigið komi ekki í ljós fyrr en við útskrift og taki miklum breytingum á skömmum tíma. Ljóst er að þörf er á að minnka vaxtaáhættu námsmanna að námi loknu. Ekki eru þó lagðar fram tillögur þess efnis í frumvarpinu en lagt er til að endurskoðun á vaxtakjörum lána fari fram síðar á árinu í tengslum við heildarendurskoðun á lögunum sem þarf auðvitað að ræða í takti við styrki og hvernig við ætlum að styðja námsmenn í heildarsamhengi verkefnisins.
Með frumvarpinu er lagt til í 1. gr. að það ábyrgðarmannakerfi lána úr Lánasjóði íslenskra námsmanna samkvæmt eldri lögum og lána úr Menntasjóði námsmanna verði fellt niður að fullu. Eftir breytinguna verður í engum tilvikum kallað eftir því að lánþegar afli ábyrgða hjá þriðja aðila og þær ábyrgðir sem til staðar eru samkvæmt eldri gildandi lögum falli niður. Meginregla gildandi laga er sú að tryggir lánþegar eins og þeir eru skilgreindir í úthlutunarreglum geti fengið námslán. Undantekningarregla gildir um aðra lánþega sem teljast ótryggir en þeir geta einungis fengið námslán með því að leggja fram fullnægjandi ábyrgðir, svo sem sjálfskuldarábyrgð ábyrgðarmanns í samræmi við 3. mgr. 11. gr. laganna. Með því að afnema 3. og 5. mgr. 11. gr. verði því aðgengi að námslánum lítillega þrengt fyrir tiltekinn hóp einstaklinga sem þó má takmarka með tilliti til félagslegra aðstæðna lánþega sem hægt er að útfæra í úthlutunarreglum Menntasjóðs námsmanna. Það er hægt að bregðast við því með úthlutunarreglum sjóðsins eins og gert er í dag en ekki er hægt að breyta þeim í takti við þessar breytingar fyrr en þær hafa verið samþykktar.
Meginatriði er að með þessum breytingum á lögunum verður sjálfskuldarábyrgðarmannakerfi námslána sem hefur verið umdeilt um langa hríð endanlega afnumið.
Með frumvarpinu er lagt til að rýmka heimildir varðandi námsframvindu í tengslum við námsstyrki með 30% niðurfellingu lána við námslok. Þannig geti lánþegi sem lokið hefur fyrsta ári í lánshæfu námi í samræmi við það skipulag námsins sem gert er ráð fyrir áunnið sér námsstyrk fyrir það nám ákveði hann að skipta yfir í annað lánshæft nám strax á næsta skólaári. Þetta þýðir að gert er ráð fyrir að lánþegi geti skipt yfir í annað lánshæft nám eftir eitt ár, lokið öðru lánshæfu námi og fengið umrædda niðurfellingu fyrir allt námið sem hann hefur stundað í samræmi við þær námskröfur sem gerðar eru. Svo dæmi sé tekið getur nemandi í lyfjafræði, sem lokið hefur fyrsta ári í því námi, ákveðið að hefja nám í hjúkrunarfræði. Með því að ljúka því námi í samræmi við skipulag námsins auk fyrsta árs námsins í lyfjafræðinni nær 30% niðurfellingin bæði til námsins í lyfjafræði og hjúkrunarfræðinámsins. Þessi réttur takmarkast við eitt skipti í tengslum við lántöku viðkomandi lánþega vegna lánhæfs náms hjá Menntasjóði námsmanna.
Þetta er mikilvæg breyting sem kemur til móts við ákall um að auka möguleika námsmanna til að skipta um lánshæft nám að uppfylltum skilyrðum ákvæðisins og án þess að það hafi áhrif á rétt þeirra til námsstyrks samkvæmt gildandi lögum.
Varðandi fjármögnun og rekstur Menntasjóðs námsmanna er í frumvarpinu fjallað um hvernig fjármögnun sjóðsins skuli háttað. Við upptöku núverandi fyrirkomulags var ein af meginforsendum að nýja lánakerfið stæði undir sér og að sjóðurinn yrði með jákvæðan vaxtamun gagnvart ríkissjóði. Það hefur ekki orðið raunin. Með frumvarpinu er því lögð til sú breyting á 3. gr. að í stað heimildar er Menntasjóði námsmanna skylt að fjármagna lán til lánþega eingöngu með lánum frá Endurlánum ríkissjóðs þannig að útlán endurspegli fjármögnunarkjör sjóðsins að viðbættu föstu vaxtaálagi Menntasjóðs.
Með frumvarpinu er einnig lagt til að heimildarákvæði um greiðslur inn á lán frá Endurlánum ríkissjóðs án viðbótarkostnaðar með samþykki fjármála- og efnahagsráðuneytisins falli brott en þess í stað mælt með því að sá ráðherra sem fer með lánsfjármál og lántökur fyrir hönd ríkissjóðs setji reglugerð um nánari útfærslu á þeim ákvæðum sem gilda um lánsfjármögnun Menntasjóðs. Í því sambandi skal m.a. lagt til grundvallar að fjármögnunarkjör Menntasjóðs hjá Endurlánum ríkissjóðs endurspegli eins og kostur er þau vaxtakjör sem ríkissjóði bjóðast á markaði.
Virðulegi forseti. Eins og heyra má af þessari yfirferð minni og eins og ég kom inn á í upphafi ræðu minnar er með frumvarpinu verið að bregðast við helstu annmörkum laganna sem fram hafa komið á síðastliðnum árum og mögulegt var að vinna á þeim tíma frá því að skýrsla um lögin kom hér til þingsins. Breytingarnar eru mjög mikilvægar. Þær varða bæði rýmkun á möguleikum námsmanna til námsstyrks samkvæmt gildandi lögum og auka sveigjanleika námsmanna til að finna nám við hæfi en líka er komið til móts við ákall um að afnema ábyrgðarmannakerfi námslána að fullu. Verði frumvarpið samþykkt óbreytt yrði það hvort tveggja mikil réttarbót fyrir námsmenn og ekki síður fyrir þá, varðandi niðurfellingu ábyrgðarmannakerfisins, sem þurft hafa að gangast í ábyrgð fyrir námsmenn til að þeir geti af fjárhagslegum ástæðum stundað nám á háskólastigi. Ég held að allir geti tekið undir mikilvægi þessara breytinga en við áttum okkur líka á að þörf er á meiri breytingum.
Virðulegi forseti. Eins og ég nefndi í upphafi ræðu minnar vil ég að lokum nefna að helstu niðurstöður þeirrar skýrslu sem ég kynnti fyrir Alþingi um framkvæmd gildandi laga sýna fram á þörfina á heildarendurskoðun. Ég hef nú hafið undirbúning að slíkri endurskoðun og legg áherslu á að sú vinna verði vönduð og taki mið af þeirri reynslu sem þegar er orðin af gildandi framkvæmd. Við þá vinnu verður hér eftir sem hingað til haft samráð við þá sem þessi mikilvægi málaflokk snertir og ekki síst námsmannahreyfingarnar í landinu. Ég vona að endurskoðun laganna um muni tryggja betri framkvæmd á gildandi lögum og réttarbætur fyrir námsmenn og verða hvatning til að auka jöfn tækifæri fyrir nemendur til að stunda háskólanám í landinu og fjölga nemendum í námsgreinum sem munu á komandi árum skipta miklu máli fyrir Ísland. Það er stórt verkefni þar sem ekki hefur tekist betur en raun ber vitni eftir langa og mikla vinnu að finna réttu leiðirnar að því hvernig við ætlum að styðja við Menntasjóð námsmanna og styðja við nemendur og tryggja jöfn tækifæri til náms.
Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að lokinni þessari umræðu verði því vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og 2. umræðu.