154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

Menntasjóður námsmanna.

935. mál
[17:42]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar að byrja á því að hrósa hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fyrir þetta frumvarp. Það eru góðar breytingar í þessu frumvarpi en ég tel þó að það gangi allt of stutt og hefði mátt gera fullt af öðrum breytingum en við munum einfaldlega að koma þeim að í þinglegri meðferð. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í það sem í rauninni stendur ekki í lögunum, það kemur í reglugerð, en hæstv. ráðherra hefur tilkynnt um að hækka þakið, hversu miklar atvinnutekjur námsmenn geta haft áður en þær fara að skerða lánið. Reyndar allt of lítil hækkun að mínu mati því að námsmenn geta alls ekki lifað á þeim framfærslulánum sem í boði eru. Af því að upphæð framfærslulánanna sjálfra er líka háð reglugerð en ekki hluti af þessu frumvarpi þá langaði mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún reikni með því að hækka framfærslulánið þannig að fólk geti raunverulega framfleytt sér af því.