154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

Menntasjóður námsmanna.

935. mál
[17:43]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hefði getað komið oftar inn á það í ræðu minni en ég er sammála hv. þingmanni að frumvarpið gengur of stutt miðað við tilefni og þörf á breytingum. En það var ekki hægt að vinna fleiri breytingar á þessum skamma tíma, þetta stóra samhengi þarf að vinnast í samráði við nemendur, þ.e. hvernig við ætlum að fjármagna þetta kerfi og styðja við jöfn tækifæri til náms. Ég hef boðað vinnu við heildarendurskoðun kerfisins sem tók ekki nema nokkur ár síðast og náðist hér sátt um. En við sjáum í skýrslunni alla þá annmarka sem eru á kerfunum.

Varðandi upphæð framfærslulánanna þá var það í úthlutunarreglunum árið 2022 sem ég hækkaði grunnframfærsluna um 18%, talsvert yfir hefðbundinni hækkun. Núna ákvað ég að forgangsraða því að hækka frítekjumarkið þar sem mismunandi ákall hefur verið frá nemendum um hvort þörf sé á að hækka frítekjumarkið eða hvort við ættum að einbeita okkur að grunnframfærslunni. Frítekjumarkið fannst mér bara allt, allt of lágt. Við vorum farin að skerða námslán nemenda sem voru með tekjur yfir 1,6 millj. kr. yfir allt árið. Ef við tökum bara meðaltekjur í þrjá til fjóra mánuði þegar skólinn er ekki í gangi, þá eru þeir sem vinna bara þannig vinnu, vinna ekki með námi, líka að fara upp í frítekjumarkið. Það var þess vegna sem ég tók þá ákvörðun. Mér þótti mikilvægt að nálgast Norðurlöndin, t.d. eins og Danmörku sem er með tvískipt frítekjumark, með þessari hækkun. Við erum þá að tryggja það að þú getur haft laun upp á um 550 þús. kr. í fjóra mánuði án þess að lán skerðist. Það er þá sumarfríið auk einhverra fjögurra vikna. Ég forgangsraðaði þessu núna ásamt því að það voru venjulegar uppfærslur á grunnframfærslunni en ég heyri auðvitað og veit að framfærsluviðmiðin — þau eiga ekki að vera í lögunum, þau eru í úthlutunarreglunum og (Forseti hringir.) við þurfum að tryggja að þau séu þannig að nemendur geti framfleytt sér og við séum að styðja við þau með sómasamlegum hætti.