154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

Menntasjóður námsmanna.

935. mál
[17:46]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Það er nefnilega þannig að það þarf að hækka bæði. Það þarf að hækka bæði framfærslulánið, sem við þurfum að muna er nú einu sinni lán sem er ætlað til þess að fólk geti lifað af, og hins vegar frítekjumarkið vegna þess, eins og hæstv. ráðherra benti á, að ef þú ert með 550 þús. kr. í laun yfir sumarið í hvern mánuð þá dugir það til þess að fara að skerða lánið yfir veturinn. Jú, það bættist við að geta unnið í einn mánuð í viðbót, kannski yfir jólin, en raunveruleikinn er sá að nemendur eru ekki að taka lán vegna þess að þau geta ekki lifað af þeim. Og það er svo fljótt að komast upp í frítekjumarkið, bara ef þau vinna 30% vinnu með námi þá eru þau búin að útiloka sjálf sig frá því að fá lán. Þess vegna er að fækka, ekki vegna einhvers efnahagsástand. Það er orðið ómögulegt fyrir marga nemendur að taka lán vegna þess hversu lágar þessar upphæðir eru. Við erum að miða við framfærslu sem er langt undir öllum grunnviðmiðum annars staðar í kerfinu. Við þurfum að muna að þetta eru lán. Ef við leyfum fólki að vinna og borga skatta þá koma tekjur inn í ríkissjóð á móti þannig að það er ekki eins og við séum að gera eitthvað gott fyrir þau, við séum að gefa þeim eitthvað. Við erum að tala um að gera þeim kleift, sérstaklega þeim efnaminni, að vera í námi.

Svo langar mig að benda hæstv. ráðherra á það að við þingmenn úr Pírötum og Flokki fólksins lögðum fram frumvarp fyrr í vetur um breytingar á Menntasjóði námsmanna. Þar er fullt af góðum hugmyndum fyrir hæstv. ráðherra að nota í vinnuhópnum sínum. Við munum leggja þær fram sem breytingartillögur líka við þetta frumvarp.