154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

Menntasjóður námsmanna.

935. mál
[17:49]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég velti fyrir mér hvernig þingmaðurinn fær það út að námsmönnunum hafi fækkað stórlega út af því að við höfum bara hækkað frítekjumarkið og grunnframfærsluna, hvernig hann fær það út að þessi breyting á fækkun námsmanna hafi orðið — út af hverju? (Gripið fram í.). Af því að við erum ekki búin að hækka grunnframfærsluna enn þá meira eða að við höfum ekki hækkað frítekjumarkið fyrr? Ég er búin að taka ákvarðanir um hækkun grunnframfærslunnar og hækkun frítekjumarksins langt umfram verðlagsþróun og er að skoða heildarbreytingar á kerfinu. Það voru gerðar hér breytingar í pólitískri sátt allra flokka, heildarbreytingar á Menntasjóði námsmanna, en við stöndum samt frammi fyrir því í dag, örfáum árum seinna, og sjáum að kerfið er ekki nógu gott. Það má velta fyrir sér hvort það sé ekki frekar greiðslubyrðin og þær ákvarðanir að breyta þessu úr því að greiða niður vexti í gagnsæja styrki, hvort það hafi ekki verið hugsað til lengri tíma um að vaxtakostnaður og greiðslubyrðin gæti orðið miklu meiri í öðru efnahagsástandi. Það hlýtur að vera ein af stóru ástæðum þess að nemendur taka minna af námslánum. Við gerðum líka á því könnun sem má skoða og lesa um í lok skýrslunnar þar sem sést líka að námsmenn vilja vinna meira, þeim finnst kerfið ógagnsætt og sjá ekki hvernig greiðslubyrðin verður. Það er þetta sem við þurfum líka að skoða.

Ég tek undir þessar áhyggjur af því að færri taki lán og fyrir því eru örugglega mjög margar og fjölbreyttar ástæður. En við erum að taka skref í að gera námslánakerfið meira aðlaðandi, hafa aukinn sveigjanleika eins og hefur verið kallað eftir frá nemendum sem eru að reyna að velja sér námsleið og að duglegir námsmenn sem eru að klára nám á réttum tíma þó að þeir hafi byrjað á annarri námsleið fái líka þennan styrk. Það skiptir máli. (Forseti hringir.) Frítekjumarkið er annað mál sem skiptir máli og afnám ábyrgðarmannakerfis síðan enn eitt sem skiptir máli.