Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Þetta er mjög mikilvægt frumvarp og gríðarlega mikilvægur málaflokkur. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um lánakerfið. Það kemur fram í frumvarpinu að ein af meginforsendum við upptöku núverandi fyrirkomulags var að nýja kerfið stæði undir sér og Menntasjóður yrði með jákvæðan vaxtamun gagnvart ríkissjóði. Ef við ætlum að lána til námsmanna þá verða það að vera niðurgreidd lán og það kostar ríkissjóð. Það væri gott ef hún gæti fjallað aðeins nánar um þann kostnað sem felst í lánakjörum. Ég get ekki séð annað en að ef þetta á allt að standa undir sér, af hverju er þetta þá ekki bara í bönkunum? Það hlýtur að vera kostnaður á bak við sem væri gott að ráðherra færi aðeins ofan í. Líka varðandi styrkina, það segir í frumvarpinu að það hafi valdið vonbrigðum að styrkjakerfið hafi verið notað minna en búist var við, raunverulega um 58% minna notað.
Mig langar að spyrja ráðherrann: Hvaða fyrirmynd höfðum við í núverandi kerfi og hvaða fyrirmynd höfum við núna? Erum við að færast nær Noregi eða nær Danmörku? Danmörk er með mikið styrkjakerfi fyrir námsmenn sem er mjög gott kerfi, Norðmenn með minna. Ég sé ekki minnst á neina fyrirmynd. Erum við að búa til kerfi sem er algerlega heimatilbúið eða erum við að horfa til annarra Norðurlanda? Er ekki málið að efla styrkjahlutann eins mikið og hægt er og afnema frítekjumarkið? Ef nemendur vilja vinna og afla sér tekna, geta jafnvel fengið góðar tekjur í ákveðnum greinum, er það ekki bara allt í lagi? Þeir fengju þá styrki eða námslán ef þeir óska þess. Þetta verður að kosta ríkissjóð ákveðinn peninga, þetta er fjárfesting (Forseti hringir.) og þá hlýtur það að vera styrkjakerfi sem skiptir máli.