154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

Menntasjóður námsmanna.

935. mál
[17:53]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður fer svona almennum orðum um styrkjakerfið og lánakerfið í heild sinni. Fyrst vil ég nefna það að kerfið sem var hér áður en þessi lög voru samþykkt var ekki heldur nógu gott. Á það kom líka mikil gagnrýni. Kostnaður ríkisins við það kerfi og niðurgreiðslan til nemenda var sérstaklega vegna eldri nemenda sem náðu aldrei að borga mikið af lánunum sínum og það var ógagnsætt hvar niðurgreiðslan var af því að við vorum að niðurgreiða vexti. Fólk sem fór seint í nám, fór í dýrt nám, vann ekki í samræmi við nám sitt að námi loknu — það voru kannski þeir sem fengu í raun hæstu styrkina af því að þeir endurgreiddu minnst til baka af því láni sem ríkissjóður veitti þeim. Þetta var gagnrýnin. Við ætluðum að færa kerfið nær Norðurlöndunum og fyrrverandi hæstv. menntamálaráðherra vann allt kjörtímabilið að þeim breytingum sem síðan voru samþykktar hér 2020 til að nálgast styrkjakerfi Norðurlandanna. Þá fórum við í það frekar að veita styrki þannig að það er gagnsætt hvar niðurfelling og kostnaður ríkisins er við kerfið og hann fer ekki eins mikið í að greiða niður vexti. Þetta er stór breyting. Það má kannski segja að við höfum farið svona hálfa leið í að nálgast löndin í kringum okkur. Við vorum að reyna að finna einhvern skynsamlegan milliveg og í heildarendurskoðuninni sem kemur núna þá þurfum við náttúrlega að ræða það hvernig við ætlum að hafa þetta til lengri tíma og af hverju við erum enn þá óánægð með kerfið í dag sem við settum á.

Varðandi kostnaðinn við kerfið þá snýr hann líka að rekstri sjóðsins og þar með fjármögnun hans og eins og kemur fram í skýrslunni þá fara 20% af útgjöldum Menntasjóðsins til kerfisins og umsýslunnar sem er allt of umfangsmikið. Þarna verður að gera bragarbót á og (Forseti hringir.) líka að leita leiða til að einfalda lögin en ekki endalaust að flækja þau og búa til nýja hnúta sem gerir kostnaðinn og umfangið enn þá meira. (Forseti hringir.) Það þarf að sjást í rekstrinum hvaða fjármunir fara í kerfið og því gengur ekki að sjóðurinn sé á gömlu lánsbókinni.

(Forseti (LínS): Forseti vill minna hæstv. ráðherra á að ræðutíminn er tvær mínútur í andsvörum.)