Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Hæstv. ráðherra talaði hér um allt of mikinn kostnað og ég tek undir það. Samkvæmt því sem kemur fram í frumvarpinu er kostnaður við rekstur allt of hár og regluverkið of flókið og kostar um 20% af öllum framlögum ríkisins til námsaðstoðar í gegnum Menntasjóð námsmanna. En við erum með námslánakerfi sem á að standa undir sér eins og kemur fram í frumvarpinu. Ráðherra talar um að við séum að niðurgreiða vexti og þá er miðað við markaðsvexti, að sjálfsögðu. En þetta er fjárfesting. Við viljum að fólk fari í nám og þá á ríkið að setja pening í það. Svo einfalt er það. Ef við ætlum að hafa námslánakerfi sem á algerlega að standa undir sér og ríkið setur ekki krónu í það, þá er alveg eins gott að hafa bara markaðsfyrirkomulag á þessu, hafa það í bankakerfinu Við verðum að tryggja að lánin séu á góðum kjörum og líka að styrkirnir séu nýttir. Það þarf að vera gulrót fyrir nemendurna, þeir óski eftir að námsframvindan verði með eðlilegum hætti og ríkið liti á þetta sem fjárfestingu. Ég man ekki betur þegar ég var í þessu að þá þurfti maður að ná prófum til að fá námslán. Það er náttúrlega það sama með styrkina núna, nemendur vinna sér inn styrki.
Þurfum við ekki að fara meira inn í styrkjafyrirkomulagið og takmarka ekki frítekjumarkið? Ef fólk getur aflað sér tekna líka í náminu skiptir frítekjumarkið einhverju máli? Af hverju þarf að skerða nemanda sem aflar sér tekna og er líka með fulla námsframvindu? Þá setur ríkið ekki pening í námslánin. Af hverju má hann ekki bara fá lán sem námsmaður? Ég sé ekki alveg hver ástæðan fyrir því er. Í fyrsta lagi eiga námsmenn ekki bara eingöngu að vera að vinna annars staðar (Forseti hringir.) en það á að tryggja það að þeir hafi góðan rétt á námslánum og líka styrkjum. (Forseti hringir.) Þetta kerfi er greinilega mjög gallað hvað varðar styrkina. Ég vona að það standi til bóta núna.