Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Við ræðum hér breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna frá hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ég fagna því nú líkt og alltaf þegar málefni nemenda stúdenta eru rædd hér í þessum mikilvæga sal, það gerist ekki nægilega oft. Mér skilst að það hafi tekið töluverðan tíma að undirbúa þetta mál, mögulega frá því að hæstv. ráðherra tók við embættinu fyrir hátt í þremur árum, og á þessari vegferð hafa ýmsir hagaðilar auðvitað tekið þátt í þeirri vinnu með ráðherra sem einnig hefur lagt fram skýrslu um Menntasjóð námsmanna þar sem til umfjöllunar eru m.a. ýmsir annmarkar á sjóðnum. Hæstv. ráðherra fór yfir það í ræðu sinni að það er ljóst, byggt á þessari skýrslu, að það er þörf á töluvert miklum breytingum á þessu fyrirkomulagi sem við höfum á því að styrkja námsfólkið okkar, unga fólkið okkar til náms. Við höfum ekki náð því sem var ætlunin, að tryggja öllum jöfn tækifæri til náms. Og svo ég vísi aftur í ræðu ráðherra þá stendur nú fyrir dyrum heildarendurskoðun á þessum málaflokki en hún leggur fram hér þessar breytingar til að byrja með.
Það má kannski segja að það hafi verið undanfarin ár lagt svolítið mikið púður í lítil áhrif, í ljósi þess að það er ekki langur tími eftir af þessu kjörtímabili. En hér erum við og erum að ræða þetta mál og ástæðan fyrir því að ég segi að það hafi kannski verið lagt mikið púður í lítil áhrif, fyrir utan beina tilvísun í hæstv. ráðherra sem var ekkert að draga fjöður yfir það að þetta væri fyrsta skrefið af mörgum sem hún hygðist fara í til að bæta kerfið, er sú að Bandalag háskólamanna, BHM, og landssamtök íslenskra stúdenta hafa hvatt stjórnvöld til að stíga metnaðarfyllri skref til skemmri tíma og síðan stefna að endurskoðun á námslánakerfinu á breiðum grunni til lengri tíma. Þessi félög sem tala fyrir hagsmunum stúdenta telja að of skammt sé gengið í breytingum á þessu styrkjafyrirkomulagi. Við þurfum að vera með kerfi þar sem lagt er kapp á að það sé hvetjandi, kerfi sem hvetur til námsframvindu en er auðvitað líka tengt raunveruleikanum. Það er alltaf þessi línudans. Stúdentar sem taka námslán eiga að geta raunverulega lifað af þeim kjörum sem þeim býðst á sama tíma og það er verið að hvetja þá með styrkjakerfinu í námsframvindunni.
Þegar fylgst er með umræðunni um þessi mál almennt undanfarin má vitna í bíómyndinni sígildu um dag múrmeldýrsins af því að þessi umræða um lánasjóð er endurtekið stef aftur og aftur. Þetta á sér töluvert langa sögu. Umræður um hækkun á grunnframfærslunni, hver hún á að vera, hvernig hún á að vera, hvaða skilyrði eigi að vera fyrir því, hvernig á að greiða þetta út, frítekjumarkið — þetta er allt okkur mjög vel kunnuglegt. En síðan er það auðvitað þannig að áður en kerfinu var breytt 2020 þá voru vextirnir niðurgreiddar verulega. Það fólst ákveðinn styrkur í því í þágildandi kerfi. Síðan var kerfinu breytt eins og búið er að fara yfir hér af hálfu ráðherra og örlögin hagað því þannig að sú breyting á sér stað í lágvaxtaumhverfi, sem einhverjir trúðu jafnvel að yrði til framtíðar. En staðreyndin er sú að í dag eru íslenskir stúdentar að greiða margfalda vexti, tífalda held ég að hafi komið fram í umsögnum BHM við málið, miðað við vexti á árunum 1992–2020. Þetta er auðvitað veruleikinn sem lánþegar sjóðsins standa frammi fyrir. Þessi vaxtamunur hefur auðvitað mikil áhrif á stúdenta og hlýtur að vera letjandi breyta þegar kemur að því að taka námslán.
Svo er ákveðinn hópur sem nær ekki þessari námsframvindu sem þarf til að fá styrkinn sem núverandi kerfi byggir á. Tölur sýna að þeir einstaklingar greiða um 60% meira af námsláninu yfir starfsævina en einstaklingar gera í gamla kerfinu þannig að það er auðvitað að mörgu að huga.
Á sama tíma og ég hef fullan skilning á þeirri viðleitni að tryggja það að fólk hagi sínu námi á þann hátt að það fari fljótt og vel í gegnum það, þá megum við heldur ekki alveg bregða fæti fyrir nemendur sem eru kannski komnir eitthvað áleiðis í námi sínu, en átta sig á að þeir hafa kannski ekki valið rétt eða taka jafnvel einhvern kúrs sem sveigir þá af braut og þeir vilja skipta. En það má ekki vera algerlega niðurnjörvað að það kosti gríðarleg fjárútlát af þeirra hálfu ef niðurstaðan er síðan að þeir ljúka háskólanámi, sem er mikilvægt fyrir samfélag okkar að nemendur geri.
Staðreyndin er sú að þessi styrkur sem átti að auka hvatann til að hraða námsframvindunni virðist sem sagt hafa misst marks þegar við skoðum raunveruleikann. Fjöldi þeirra sem nýtir sér námsstyrkina er einfaldlega miklu minni en lagt var upp með þegar farið var í þá vegferð að breyta kerfinu. Og þetta virðist vera algjör lykilbreyta þegar kemur að því að stúdentar ákveði hvort þeir ætli að taka námslán eða ekki. Í könnun sem ráðuneyti háskólamála gerði kemur í ljós að 71% þeirra sem ekki taka námslán sögðust vera líkleg til að gera það ef ekki væru þessi tímatakmörk á námsstyrknum.
Á sama tíma heyrum við líka að það hefur ekki tekist að draga úr atvinnuþátttöku stúdenta með þessu nýja kerfi. Hugsunin með háskólanámi, hugsunin með námslánakerfinu og ég tala nú ekki um styrkjakerfinu er auðvitað sú að nám er full vinna. Þannig er einingakerfið okkar byggt upp en þá þarf námslánakerfið að vera raunveruleikatengt. Þess vegna fagna ég t.d. því sem kom fram í máli hæstv. ráðherra, sem er ekki hér í salnum, að ætlunin væri, ef ég skildi hana rétt, að skoða tvískipt frítekjumark þannig að nemendur hefðu þess kost þegar það er frí í skólunum að vinna mikið og leggja til hliðar án þess að það komi niður á námslánum þeirra. Þannig væri vonandi dregið úr þörf nemenda til að vinna með námi. Það er mikilvægt vegna þess að ég held að við gerum okkur öll grein fyrir því, kannski ekki síst við sem eldri erum, að það er töluverður munur á því að keyra sig í gegnum nám þannig að maður nái prófunum eða að hafa tíma að velta upp hlutum sem eru til umræðu, sem eru kenndir, og hafa svolítinn tíma til þess að hugsa um hlutina. Það hlýtur að vera hugmyndin með náminu og þessu kerfi okkar.
Þegar allt kemur til alls er full ástæða til að staldra við og spyrja af hverju kerfin okkar missa svona oft marks. Við flækjum þetta, það er ekki það að við séum ekki að setja nægilega peninga í þetta en við náum einhvern veginn ekki að hugsa hlutina alveg til enda og svo þegar á að gera breytingar eru kerfin gjarnan stagbætt, mögulega á þann veg að þau missa marks.
Við erum hér með þetta kerfi og það hafa komið fram mjög sterk rök fyrir því að grunnframfærslan sé of lág, hvatakerfið sé ekki að virka og hvað gerist þá? Jú, stúdentar vinna með námi og eru því lengur að ljúka námi en þurfa þykir og það er ekki gott. Þeir fara þar af leiðandi eldri út á vinnumarkaðinn og þetta eru hlutir sem hafa áhrif á samfélagið okkar. Í þessu kostnaðarsama kerfi, og ég dreg enga dul á það, býr gríðarlega mikilvæg fjárfesting. Fjárfesting í menntun er fjárfesting í mannauði. Það er fjárfesting í samfélaginu og það er sú fjárfesting sem við vitum öll að er ein dýrmætasta og mikilvægasta fjárfestingin sem við getum lagt út í. Það er góð fjárfesting að tryggja að stúdentar geti stundað nám sitt á sómasamlegum kjörum, lokið námi á góðum hraða og komið síðan með þekkingu sína inn á vinnumarkaðinn með tilheyrandi ábata. En bugað ungt fólk með dýr lán á bakinu sem sér kannski ekki fram á að menntunin borgi sig fjárhagslega næstu áratugina — það er ekki endilega góður leiðarvísir. Þannig kerfi er ekki að vinna fyrir samfélagið okkar. Einfalt, skilvirkt og sanngjarnt kerfi hlýtur að vera varðan.
Mig langar, frú forseti, að nefna ábyrgðarmannakerfið sem er verið að leggja til að verði lagt niður. Það er grunnstef Menntasjóðsins að vera félagslegur jöfnunarsjóður til þess að tryggja jafnrétti til náms. Mig langar bara að taka undir ákveðnar efasemdir um að það sé endilega að óbreyttu heillaskref að koma í veg fyrir að ótryggir lántakar geti haft aðgang að námslánakerfinu. Núverandi kerfi er þannig uppbyggt að slíkir ótryggir lántakar, sem hafa af einhverjum ástæðum ekki lánstraust, geti tekið lán ef ábyrgðir eru lagðar fram. En í þessu frumvarpi sem við ræðum hér er verið að fella þessa lagagrein á brott og skilyrði eru sett í úthlutunarreglur sjóðsins í staðinn. Ég held að það sé mjög mikilvægt að það sé farið vel yfir það af hálfu ráðuneytisins eða hv. allsherjar- og menntamálanefndar sem fær málið til meðferðar að einhvers staðar í þessu ferli verði staða ótryggra lántaka varin.
Það hefur töluvert verið beðið eftir breytingum á þessu kerfi og mikið fjallað um þetta, m.a. kemur skýrt fram í lífskjararannsókn BHM sem gerð var fyrr á þessu ári að greiðslubyrði af námslánum leggst einfaldlega þungt á háskólamenntaða á vinnumarkaði. Fjöldi þeirra sem segist finna mikið eða verulega fyrir byrði námslána hefur aukist á tveimur árum úr 35% aðspurðra í 42%. Auðvitað spila þar efnahagsaðstæður lykilhlutverk en við búum jú í verulega sveiflukenndu hagkerfi og þetta er of há tala. Þetta er einfaldlega of há tala. Það gengur ekki að þriðjungur eða hátt í helmingur ungs fólks sem sest niður og ætlar að reikna hvort það borgi sig að fara í háskóla fái þá útkomu að það borgi sig ekki endilega nema það hafi bakhjarl, ekki Menntasjóðinn heldur fjölskyldu eða annað slíkt sem getur stutt við það á þessari vegferð. Það er ekki þannig sem við ætlum að byggja upp samfélagið.
Það er ljóst að góð kjör stúdenta hljóta að vera liður í gerð kjarasamninga við háskólamenntaða og á opinbera markaðnum sem hafa kannski verið skildir eftir þegar kemur að kaupmáttaraukningu. Við í Viðreisn viljum stuðla að því að hér verði byggt upp námslánakerfi sem virkar, sem þjónar hagsmunum stúdenta, það verði þannig úr garði gert að stúdentar geti einbeitt sér að náminu þannig að samfélagið ákveði að fjárfesta í kerfi sem virkar fyrir þennan mikilvæga mannauð okkar. Ég heyri á ráðherra að það er þannig kerfi sem hún ætlar sér að skila og við munum styðja hana á þeirri vegferð, en jafnframt segja: Klukkan tifar.