154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

Menntasjóður námsmanna.

935. mál
[18:13]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S):

Frú forseti. Fyrst er það að segja að frumvarp hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra er mikilvægt og það er efnislega mjög gott og ég styð það. Ég tek líka undir nauðsyn þess að ráðist verði í heildarendurskoðun á lögum um Menntasjóð námsmanna, það er ýmislegt þar sem þarf úrbóta við. En fyrst og fremst er ég hingað kominn, frú forseti, til að gera grein fyrir breytingartillögu sem ég hef lagt fram ásamt hv. þm. Berglindi Ósk Guðmundsdóttur við þetta frumvarp. Breytingartillagan er efnislega á þá leið að bætt verði nýrri málsgrein í 7. gr. laga um Menntasjóð námsmanna sem myndi orðast svo, með leyfi frú forseta:

„Námslán eru veitt vegna náms við lýðskóla hafi skólinn hlotið viðurkenningu Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu samkvæmt lögum um lýðskóla. Fullt nám við lýðskóla eru tvær annir. Nám við lýðskóla veitir ekki einingar en fullt nám telst samsvara 60 stöðluðum framhaldsskólaeiningum hvað vinnuframlag varðar. Til að ná lágmarksframvindu skv. 13. gr. þarf nemandi að skila 80% mætingu og þátttöku samkvæmt reglum viðkomandi skóla.“

Frú forseti. Hér er verið að leggja til að auðvelda ungu fólki aðgengi að lýðskólum hérlendis með því að nám við þá verði lánshæft með sama hætti og annað starfsnám. Nám við lýðskóla í dag er dýrt og í flestum tilvikum kostað af fjölskyldum nemenda. Þannig er að frumvarp það sem við erum hér með til umræðu um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna er öðrum þræði — með þessum tveimur breytingum um að auka og víkka út skilyrði fyrir námsstyrk og líka fella út ábyrgð að öllu leyti — skref í átt að auknu jafnrétti til náms, að auka aðgengi nemenda að námslánum til að sækja sér menntun sem þeir kjósa. Hlutverk Menntasjóðs námsmanna er nefnilega sannarlega að tryggja jöfn tækifæri til náms án tillits til efnahags. Almennt eru námslán veitt til náms sem lýkur með prófgráðu á háskólastigi við viðurkennda háskóla en einnig eru veitt lán vegna aðfaranáms fyrir háskólanám eða starfsnáms og viðbótarnáms við framhaldsskóla með ýmsum skilyrðum.

Samkvæmt lögum um lýðskóla skulu nemendur hafa náð 18 ára aldri og námið er hvorki metið til eininga né lýkur því með prófgráðu. Í 6. gr. laga um lýðskóla segir, með leyfi frú forseta:

„Námið skal stuðla að umburðarlyndi nemenda og miða að því að gefa þeim tækifæri til að þroskast á eigin forsendum, rækta hæfileika sína og styrkleika og auka skilning á sögu, menningu, virðingu fyrir lífsgildum annarra og innviðum lýðræðislegs samfélags.“

Frú forseti. Starfsemi lýðskóla er að mörgu leyti sérstök, einkum varðandi námsmat og eftirlit með gæðum náms. Hér skiptir mestu að hugmyndafræði lýðskóla byggist á því að ekki séu haldin hefðbundin próf, námið sé ekki einingabært. Það eru skólarnir sjálfir sem sinna gæðaeftirliti með reglubundnu sjálfsmati.

Í greinargerð með frumvarpi sem varð að lögum um lýðskóla, nr. 65/2019, segir, með leyfi frú forseta:

„Margt bendir og til þess að dvöl í lýðskóla auki líkur á útskrift nemenda í formlegu námi síðar meir, samkvæmt dönskum rannsóknum. Þá hafa jákvæð samfélagsleg áhrif einnig verið mæld í rannsóknum á Norðurlöndum.“

Í lýðskóla, frú forseti, fá nemendur og kennarar tækifæri til að vera við leik og störf, prófa sig við ólík viðfangsefni án þess að þurfa að sökkva sér niður í fræðilegar einingar og skólabækur. Nám við lýðskóla er þannig náskylt starfsnámi við framhaldsskóla sem nú þegar er lánshæft. Þetta er mikilvægt atriði til að hafa í huga. Námsmat og endurgjöf í lýðskólum er ekki fengin með hefðbundnum prófum og einkunnum heldur í gegnum fundi og samtöl. Samtöl, samvinna, verklegt nám og vettvangsferðir eru lykilorðið í þessum efnum. Þetta er það, frú forseti, sem gefur lýðskólum frelsi til að mennta og þroska nemendur með óhefðbundnum en árangursríkum aðferðum.

Það eru tveir lýðskólar starfandi hérlendis. Það er Lýðskólinn á Flateyri og LungA á Seyðisfirði. Það er alveg ljóst að skólarnir eru báðir afar mikilvægir út frá samfélagslegu sjónarhorni, annars vegar sem vettvangur eða eigum við að segja gátt fyrir fjölbreyttan hóp nemenda sem ekki hefur fundið sig innan hins hefðbundna skólakerfis og hins vegar út frá byggðamálum, enda hafa skólarnir báðir haft lykiláhrif á íbúaþróun á viðkomandi stöðum.

Hér er sem sagt, frú forseti, verið að leggja til að aðgengi að lýðskólum hérlendis verði aukið með þeim hætti að námið verði lánshæft með sama hætti og annað starfsnám. Það er líka verið að leggja til að þetta gildi þá einungis um lýðskólanám hérlendis.

Aftur að því frumvarpi og tengingu þessarar breytingartillögu við frumvarpið sem hér er til umræðu. Ég tel að hér sé um sömu markmið að ræða. Það eru sömu forsendur um að auka jafnrétti til náms og með þessari breytingartillögu tel ég að það sé verið að styðja við þann kost sem þegar hefur sýnt fram á gildi sitt á undanförnum árum, lýðskólann og lýðskólafyrirkomulagið, bæði samfélagslega en sérstaklega fyrir þá einstaklinga sem um er að ræða sem hafa átt kost á að stunda nám við lýðskóla hérlendis.