Menntasjóður námsmanna.
Forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferð sína á frumvarpi sem á sér auðvitað nokkurn aðdraganda eins og gerð var grein fyrir hér af hennar hálfu. Stúdentar hafa vissulega beðið eftir áður boðaðri endurskoðun núna í nokkur misseri. Hér ber hins vegar að hafa eitt á hreinu. Í þeim tillögum sem hér eru lagðar fyrir Alþingi er ekki um að ræða leiðréttingu á því sem kalla má brýnustu hagsmunamál sem íslenskir stúdentar standa frammi fyrir í dag. Umfangið nær öðru fremur til þriggja atriða, þ.e. ábyrgðarmannakerfisins og afnáms þess til frambúðar, möguleika stúdenta á að breyta vali á námi sínu án þess að það komi niður á hlutfalli styrks þeirra og síðan fjármögnunar sjóðsins.
Það er vægt til orða tekið þegar sagt er að það sé svigrúm til endurskoðunar á námslána- og námsstyrkjaumhverfi hér á landi þrátt fyrir að einhverjir kunni mögulega að halda öðru fram. Það er að mörgu leyti krefjandi hlutskipti að vera íslenskur háskólastúdent og framfleyta sér í háskólanámi. Ef fram heldur sem horfir þá verður háskólanám ekki lengur að aðalverkefni fólks sem útskrifast úr framhaldsskóla, það verður lítið hliðarverkefni að vera í háskóla sem fólk sinnir bara meðfram því sem allir virðast koma til með að þurfa að stunda sem er full vinna, hreinlega til þess að geta átt möguleika á því að koma undir sig húsnæði til frambúðar, þ.e. komast inn á húsnæðismarkaðinn, stofna fjölskyldu, og það sem skiptir ekki minna máli, hreinlega að fá að læra og vinna við það sem maður þráir helst að gera.
Íslenskir námsmenn setja um þessar mundir Evrópumet í atvinnuþátttöku. 58% námsmanna vinna með námi til að hafa hreinlega efni á því að vera í skóla, stunda háskólanám. Þvert á allar spár hafa námsstyrkirnir, eins og farið hefur verið yfir hér í dag, ekki hvatt til hraðari námsframvindu. Þetta er auðvitað grafalvarleg staða. Þessi skref sem lögð eru til í frumvarpinu sem hér liggur fyrir eru að mörgu leyti einhver skref í rétta átt, mér finnst ekki rétt að gera lítið úr því. En ég ítreka það sem ég hef sagt, þetta er ekki leiðrétting eða kjarabót sem varðar brýnustu hagsmuni stúdenta á Íslandi.
Til að rifja upp þá verður auðvitað að gera grein fyrir því að með stóru breytingunum 2020, þegar Menntasjóðnum var komið á fót í núverandi mynd, þá var hugsunin sú að búa til styrkjakerfi að norrænni fyrirmynd sem fæli í sér 30% niðurfellingu á höfuðstól að virtum ákveðnum skilyrðum. Þetta var svona umfram annað að norskri fyrirmynd en við útfærsluna gleymdist auðvitað að gera ráð fyrir íslensku vaxtaumhverfi. Við héldum að við værum búin að búa til lágvaxtaríki en í dag eru stýrivextir 9,25%, hafa hækkað hressilega. Til samanburðar legg ég áherslu á að þegar lögin voru samþykkt voru vextir í kringum 1,75%. Þess vegna höfum við ekki orðið vitni að raunverulegri aukningu á styrkjum til háskólastúdenta og eins og Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur bent á þá kemur fram í skýrslu háskólaráðuneytisins, sem kom út í árslok 2023, að í nokkrum tilfellum, hreinlega nokkuð mörgum tilvikum, veitir kerfið með nýju lögunum lakari kjör en gamla kerfið bauð upp á.
Við getum auðvitað ekki horft fram hjá því að lántakendur hafa litla sem enga hugmynd um vaxtakjör sem koma til með að gilda um afborganir lána þegar upp er staðið, þ.e. þegar þau taka ákvörðun um að taka námslán. Á mannamáli þýðir þetta einfaldlega það að vextirnir éta upp niðurfellinguna, styrkur ríkisins dregst verulega saman á móti. Og já, vissulega kemur fram hérna í almennum hluta greinargerðar að mikilvægt sé að minnka vaxtaáhættu námsmanna. Ég geri ekki lítið úr því, við erum flestöll meðvituð um að þetta er auðvitað slæm staða. Ég skynja mikinn vilja til þess að leiðrétta þetta. Auðvitað er þetta galin staða. En það er ekki nóg að vísa bara til þess að endurskoðun á vaxtakjörum fari fram síðar. Það er vel. Ég skynja hreinlega áþreifanlegan vilja til að gera betur að þessu leyti strax, því að pólitískur vilji til grundvallarbreytinga skín nefnilega í gegn í lögskýringargögnum. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að þrátt fyrir að skilningur á vandamálinu sé til staðar þá er í lok dags vilji til þess að gera raunverulegar breytingar takmarkaður vegna þess að það er hægt að horfa t.d. til ummæla fjármála- og efnahagsráðuneytisins í fyrrgreindri skýrslu sem lesa má úr lögskýringargögnum um að þörf sé á að minnka vaxtaáhættu námsmanna að námi loknu og því hefur verið velt upp hvort ástæða geti verið til að lækka vaxtaþakið, enda borðleggjandi að háir vextir námslána dragi úr hvata til að sækja stuðning til ríkisins til að stunda nám.
Hvað segir þetta okkur? Jú, hér hefðu stjórnvöld betur mátt hlusta á ábendingar stúdenta í aðdraganda lagasetningar sem bentu ítrekað á mikilvægi þess að gert yrði ráð fyrir vaxtaþaki. Það eru vaxtaþök sem þurfa að vera til staðar. Þau geta verið nokkur miðað við eðli lána sem um er að ræða. En ég velti fyrir mér: Jú, hvers vegna var þeim ekki komið á í upphafi? Við vitum af hverju það er: Vegna þess að áhættan á að liggja hjá námsmönnum. Hún á að liggja hjá stúdentum.
Samkvæmt þeirri skýrslu sem liggur fyrir hér frá háskólaráðuneyti er eitt meginmarkmiða í fyrirhugaðri endurskoðun umfram allt annað, þeirri sem hér liggur fyrir, að halda ríkissjóði skaðlausum. Ég endurtek: Halda ríkissjóði skaðlausum. Þetta þýðir að sjóðurinn er í lok dags ekki hugsaður sem fjárfestingarsjóður í háskólanámi og þekkingarsamfélagi á Íslandi. Ef áherslan er og verður á skaðlausan ríkissjóð þá þýðir það bara eitt: Stúdentar bera áhættuna. Þetta sést einna skýrast í vaxtaálagi. Íslenska ríkinu tókst að standa undir afföllum námslána í u.þ.b. 70 ár þangað til nýtt fyrirkomulag Menntasjóðs tók við en nú bera stúdentar kostnaðinn til að mynda af vanskilum annarra lántaka, allt í þágu skaðleysis ríkissjóðs.
Það er gott og blessað að stúdentar eigi ekki til lengdar að vera í vistarbandi í námi sem þeir vilja ekki vera í. Ég fagna því sannarlega að við séum að taka þau skref að gera fólki kleift að endurskoða vilja sinn til að leggja nám fyrir sig sem það valdi mögulega af handahófi daginn fyrir lokadagsetningu í skráningar háskólanna og að ótta við það að færa sig á milli námsbrauta sé útrýmt, það muni ekki leiða til þess að stúdent sé að kalla yfir sig fjárhagslega óvissu eins og ákvörðun um að færa sig á milli námsbrauta getur leitt til í óbreyttu kerfi. Nemandi mun ekki vita fyrir víst hvort hann fær 30% niðurfellingu fyrr en að námi loknu, svo það sé sagt. Hins vegar verður að koma fram að ef lántaki uppfyllir ekki skilyrði um námsframvindu til að hljóta þessa niðurfellingu — og þetta er það sem við vitum ekki hvernig verður addressað síðan þegar til kastanna kemur — ef þessi skilyrði eru ekki uppfyllt, vegna þess að við erum ekki að fara að afnema þau í fyrirliggjandi frumvarpi, það er bara verið að búa til aðeins meira svigrúm hérna, þá eru endurgreiðslukjör á þessu í flestum tilfellum jafn slæm og af íbúðalánum, fasteignalánum, þannig að það er ekkert skrýtið að íslenskir stúdentar velji frekar að taka fjárhagslega óvissu út úr sínu lífi en bæta við þeim mun fleiri vinnandi stundum og fækka þeim stundum sem þau dvelja innan veggja háskólans eða í samveru við samnemendur sína eða bara hreinlega til að sinna náminu, til að sinna frekar þá bara launaðri vinnu.
Það eru að verða forréttindi að hafa tök á því að stunda fullt nám án þess að þurfa að sjá sér hreinlega farborða með launaðri vinnu í mjög miklu og háu starfshlutfalli og hér erum við ekki að tala um tilfallandi vaktir á veitingahúsum eða íhlaupavinnu sem stúdentar hafa auðvitað bara mörg hver ágætlega gott af því að gera. Við erum ekki að finna að því að það sé reyndin. Ég held að flestir séu sáttir við það að eiga hlutastarf með skóla. Við erum ekki að tala um þær aðstæður. Við erum að tala um að það er stórkostlegt ójafnvægi milli þess hversu mikið fólk þarf hreinlega að vinna til að geta séð sér farborða á meðan það stundar háskólanám. Það kemur bara niður á einu, það kemur niður á persónulegum námsárangri.
Mér finnst líka ástæða til að tala hér sérstaklega um fjölskyldufólk. Þú stefnir ekki fjárhagsöryggi fjölskyldunnar í hættu með því að reyna að brjótast út úr fátækt, sækja þér menntun sem þú telur þig ekki hafa átt kost á að stunda fyrr en nú og reiða þig alfarið á Menntasjóðinn til að sjá þér farborða. Nemendur með námserfiðleika sömuleiðis eða þeir sem eru með annað móðurmál en íslensku, venjulegt fólk sem ætlar sér að ganga menntaveginn og leggja af mörkum tíma sinn til þess að auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs, á samkvæmt núverandi stefnu stjórnvalda að gera það fyrst og fremst á eigin kostnað, á eigin áhættu og stefna fjárhagslegu öryggi sínu í talsverða óvissu. Það er ekki jafnrétti til náms. Námslánakerfi eða námsstyrkjakerfi sem nær ekki markmiðum sínum um jöfn tækifæri til náms og liðkar fyrir námsframvindu hefur í för með sér umtalsverðan kostnað fyrir ríkissjóð og samfélagið í heild sinni. Það eru mjög skýr tengsl á milli allt of mikillar atvinnuþátttöku íslenskra stúdenta og lágrar framvindu í háskólanámi. Í lok dags leiðir þetta bara til ójafnra tækifæra, eins og ég hef rakið hér áður, lágs menntunarstigs og aukinnar stéttaskiptingar. Það kemur ekki vel við þjóð sem getur ekki skartað háu menntunarstigi í samanburði við aðrar OECD-þjóðir.
Frú forseti. Ríkisstjórnin hefur núna færi á því að gera tímabærar breytingar á námsstyrkjakerfi sem gerð var tilraun til að koma á fót með árangri sem hefur valdið vonbrigðum. Þetta eru tillögurnar. Þetta er aðeins of lítið, aðeins of seint, felur ekki í sér raunverulega viðleitni til að fjárfesta af öllu afli í íslensku hugviti með því að gera sem flestum kleift að stunda háskólanám af fullri alvöru. Um allan heim, og ég vísa hér sérstaklega til Bandaríkjanna, hafa yfirvöld lagt kapp á að vinda ofan af misskiptingu sem hefur skapast af skaðlegum námslánakerfum sem hafa boðist einstaklingum í viðkvæmri félagslegri stöðu í gegnum árin. Þetta er ekki bara spurning um félagslegt réttlæti heldur mun samfélagið í lok dags allt njóta góðs af hækkuðu menntastigi og aukinni framleiðni þjóðar sem leiðir af samkeppnishæfu háskólastigi sem á að vera öðrum þjóðum fyrirmynd. Við byrjum bara á því að skoða leiðir á borð við það að hækka mögulega styrkjahlutfallið verulega. Ég vona að umræðan í allsherjar- og menntamálanefnd geti leitt okkur nær því takmarki. Ég heiti því fyrir hönd okkar jafnaðarmanna að sýna öllum skrefum sem færa íslenska stúdenta nær því að búa við raunverulegt jafnrétti til náms stuðning minn. Ég ætla að lofa því, en ef fram heldur sem horfir þá færumst við sífellt fjær því takmarki.