154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

Menntasjóður námsmanna.

935. mál
[18:34]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það væri hægt að koma inn á margt hér frá hv. þingmanni. Fyrst vil ég leggja áherslu á að það er auðvitað skýr pólitískur vilji til breytinga á námslánakerfinu. Það sýndi sig á síðasta kjörtímabili þegar þáverandi hæstv. menntamálaráðherra fór í víðtæka samvinnu sem stóð yfir nokkrar annir, kom hér með frumvarp þar sem pólitísk sátt náðist um stórar breytingar á styrkjakerfi. Síðan þurfti að koma reynsla á það, eðli málsins samkvæmt þurfti að fá reynslu á þau lög og fá alla vega einhverja til að útskrifast úr því kerfi til að geta gefið okkur einhver alvörugögn um það hvernig við þurfum að breyta því í kjölfarið og bregðast við. Það er auðvitað ekki hægt að koma hér upp í þennan stól og segja að allt of seint hafi verið brugðist við þegar fyrstu nemendurnir eru að útskrifast úr núverandi og breyttu kerfi. Við erum að gera það rakleiðis, bregðumst við strax með fyrstu breytingunum og búin að boða aðra endurskoðun laganna. Síðan þarf ég auðvitað að leiðrétta það hjá hv. þingmanni að það eru vaxtaþök. Það var tekin ákvörðun um vaxtaþök í kerfinu. Þeim var verulega breytt, enda farið að norrænni fyrirmynd, í styrkjakerfi sem óskað hafði verið eftir. En vaxtaþak verðtryggðra námslána í dag er 4% og vaxtaþak óverðtryggðra lána í dag er 9%, svo að hv. þingmaður átti sig á því. Það var til skoðunar, hvort breyta ætti vaxtaviðmiðum laganna en inn í þá umræðu verðum við auðvitað að taka mið af því að ef meðaltalsviðmið vaxta eru færð yfir lengri tíma t.d., eins og við höfum séð, þá getur það orðið mjög neikvætt fyrir lánþega eftir stuttan tíma. (Forseti hringir.) Við þurfum að skoða það í stærra samhengi og gefa okkur meiri tíma í þá umræðu en náðist fyrir þetta frumvarp.