154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

Menntasjóður námsmanna.

935. mál
[18:36]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir andsvarið. Ég má til með að segja að ég hef mögulega ekki verið skýr í orðalagi mínu en að það væri ekki til staðar vaxtaþak — ég hafði ekki slíkt í frammi í máli mínu. Hins vegar gerði ég grein fyrir ábendingum stúdenta í aðdraganda lagasetningar um mikilvægi þess að gert yrði ráð fyrir vaxtaþaki og í framhaldinu kom ég að þeirri ábendingu minni hvort ástæða gæti verið til að lækka vaxtaþakið. En við skulum kannski ekki eyða mikilvægum tíma okkar hér í að fara í smáatriði, ég vil nú meina að í stóra samhengi málanna sé þetta auðvitað bara spurning um mikilvægi þess að vera með virkt samráð. Ég fagna því auðvitað og vissulega er eitt að tala við hagsmunaaðila. Það er mjög mikilvægt og ég ætla ekki nokkurn tímann að vefengja hæstv. ráðherra þegar hún talar um að samráð hafi verið viðhaft. Ég hef orðið vitni að því. Hins vegar hef ég líka í samtölum mínum við háskólasamfélagið, við stúdentahreyfinguna, orðið vitni að því að þrátt fyrir mikilvægt og mjög ítarlegt samráð hafi kannski ekki mjög ítarlega verið tekið mark á ábendingum háskólanna, þ.e. stúdentahreyfinganna í háskólanum. Það er önnur saga. Þegar ég segi að ekki hafi verið mikið samráð þá verður það því að skiljast sem svo að efnisleg áhrif og afleiðingar af því samráði hafi ekki náð í gegn og inn í þetta tiltekna frumvarp. Hins vegar erum við auðvitað hér með skref í rétta átt. Ég ætla ekki að vefengja það, alls ekki. En þegar ég segi „of lítið og of seint“ þá er ég auðvitað að tala um það að við höfum verið með námslánakerfi hér í áratugi. Við höfum verið með í 70 ár einhvers konar fyrirkomulag þar sem við styrkjum fólk til náms. En fjárhagsleg áhætta á ekki að vera á námsmönnum sjálfum og hún heldur áfram hér. Það er það sem við finnum að.