154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

Menntasjóður námsmanna.

935. mál
[18:41]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni kærlega fyrir andsvarið. Ég vil bara fagna því að það sé samhljómur hjá okkur í stjórnarandstöðunni í þessu máli, málefnum stúdenta, þótt ég skynji auðvitað, í þessu eins og mörgu öðru, ákveðinn blæbrigðamun í áherslum sem telja má til félagslegrar sýnar á hlutverk opinberra sjóða okkar og hvað við viljum gera fyrir námsmenn. Ég ætla örsnöggt að koma því til skila til hv. þingmanns, sem og annarra sem kunna að vera að hlýða á mál mitt í dag hér í sal eða heima, að Samfylkingin er ekki komin til valda. Skoðanakannanir eru svo sannarlega upplífgandi á góðum degi en ég myndi hafa það alveg á hreinu að ábyrgðin á þessu frumvarpi er hjá ríkisstjórninni. En hvað myndi ég vilja sjá í áherslum Samfylkingarinnar kæmist hún til valda? Það endurspeglast svolítið hressilega í ræðu minni. Það þarf bara að vinda ofan af misskiptingu sem hefur skapast af námslánakerfi sem hefur ekki alltaf verið á eins félagslegum grunni og hugsast getur. Það er auðvitað hugsjón okkar jafnaðarmanna að tryggja jafnrétti til náms þannig að allir þeir sem hafa hug á og vilja og getu til að stunda háskólanám eigi að geta gert það án þess að stefna fjárhagsöryggi sínu í mikla óvissu. Því miður er það raunin eins og staðan er í dag. Það er andstætt öllum þeim tilgangi sem námsstyrkja- eða námslánakerfi á að leiða af sér.