Menntasjóður námsmanna.
Forseti. Já, ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir gott aðhald með ríkisstjórn með Samfylkingunni, ég ætla bara að taka þessu létt. Ég legg áherslu á að ég fór mjög grundigt í það í ræðu minni hér, sem var hressilega löng, að það er auðvitað ekkert smá að auka kostnaðarhlutdeild ríkissjóðs í námsstyrkjakerfinu, þ.e. að búa til þannig kerfi þar sem stúdentar á Íslandi búa ekki við helstu áhættuna af því að taka námslán, þetta sé kerfi sem finni sér raunverulega fjárfestingu í því sem heitir að vera námsmaður þar sem stúdentar láta tíma sinn af hendi til að búa hér til þekkingarsamfélag sem býr til samkeppnishæfni, samfélag sem stendur í fremstu röð á meðal OECD-landa. Þetta er svarið sem ég get gefið. Þetta felur bara í sér að það yrði aukning á styrkjahlutfalli að námi loknu. Það yrði búið til kerfi þar sem vaxtaáhættan fellur ekki á stúdenta sjálfa. Þetta eru stórkostlegar breytingar, þetta er ekkert smá. Hins vegar grunar mig að það sé verið að fiska eftir því hvort ástæða sé til að hækka frítekjumarkið. Ég er ekki sannfærð um að það sé endilega besta leiðin. Ég er alls ekki fráhverf henni, bara alls ekki. En ég held hins vegar, og mér finnst bara ágætt að það komist á framfæri hér, að eitt helsta vandamálið sem íslenskir stúdentar standa frammi fyrir, ásamt því að búa við fjárhagslega óvissu, sé að það fer mjög mikill tími í að vinna meðfram námi. Flestir stunda nám sitt í algerum hjáverkum eða hafa ekki kost á því að stunda það af jafn miklum mætti og þeir myndi kannski alla jafnan vilja gera. Þetta finnst mér stórt vandamál. Mér finnst ástæða til að hv. þingmaður hafi það hugfast að (Forseti hringir.) öflugt námslánakerfi þar sem stúdentar eru í forgangi og hagsmunir þeirra — það eru gjörðir jafnaðarmanna fyrir íslenskt velferðarsamfélag.