Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Það er ánægjulegt að hér sé verið að leggja fram frumvarp þar sem verið er að laga aðeins til í því kerfi sem búið var til þegar farið var frá því að vera með Lánasjóð íslenskra námsmanna yfir í Menntasjóð námsmanna. Því miður, þrátt fyrir að það hafi verið þverpólitísk samvinna í að gera þær breytingar, þá hefur tíminn leitt í ljós að ekki var lögð nógu mikil vinna í að hugsa það allt saman fram í tímann og því mikil þörf á því að gera ýmsar breytingar.
Stuðningur við nemendur er fjárfesting í framtíðinni og aðgengi að námi óháð efnahag, aldri og félagslegri stöðu er forsenda framþróunar. Hlutverk Menntasjóðs námsmanna er að tryggja stúdentum tækifæri til náms óháð efnahag og félagslegri stöðu. Samkvæmt könnun VII hjá Eurostudent, sem tekur saman og greinir gögn varðandi félagsmálaþætti nemenda í framhaldsnámi í Evrópu, hefur námsfólk hérlendis almennt meiri áhyggjur af fjárhagslegri stöðu sinni en nemendur annars staðar í Evrópu. Vandamálið er að með núgildandi löggjöf og lagaumhverfi og regluverki uppfyllir Menntasjóður námsmanna ekki hlutverk sitt. Ef ná á því markmiði stjórnvalda að fjölga háskólanemendum og gera hugvit að stærstu útflutningsgrein þjóðarinnar þá verðum við að efla stuðning við nemendur. Því þarf að draga úr þeirri óvissu sem margir stúdentar búa við til að tryggja afkomu þeirra, öryggi og frelsi til að ákvarða nám og frekara nám og starf í kjölfar náms eftir áhuga og ástríðu hvers og eins.
Við í Pírötum höfum verið í miklum samskiptum við námsmenn og verið að hlusta á það hvaða hlutum þurfi að breyta til að bæta stöðu þeirra. Við lögðum fram fyrr á þessu þingi mál 13, fyrir þá sem hafa gaman af því að fletta því upp, það er líka á þskj. 13, sem er frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að bæta stöðu námsmanna. Þar horfðum við m.a. á fæðingarorlof, atvinnuleysistryggingar og námslánin. Ég hef ákveðið að leggja fram þær breytingar sem við lögðum til á lögum um Menntasjóð námsmanna sem breytingartillögu við þetta mál. Við eigum eftir að sjá hvort það náist að koma því núna í 1. umræðu eða hvort við sendum það með bréfpósti til allsherjar- og menntamálanefndar þannig að þau viti af því að þetta liggi frammi.
Mig langar að fara örstutt í gegnum þær breytingar sem við leggjum til að séu gerðar á Menntasjóði. Við fögnum þessum tillögum hæstv. ráðherra en það þarf að ganga lengra. Þegar kemur að námslánunum sjálfum þá er það sem við sjáum sem helsta vankantinn, eins og hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir sagði hér á undan, að við viljum ekkert endilega að fólk þurfi að vinna með skóla. Það að vera í skóla er full vinna. Það að þurfa að vinna með skólanum kemur í rauninni niður á náminu sjálfu. Þess vegna viljum við leggja sérstaka áherslu á framfærslulánin og viðmiðið sem þar er. Stúdentar hafa ítrekað kallað eftir hærri framfærslulánum þar sem núverandi fjárhæðir hrökkva hvorki fyrir húsnæðis- né framfærslukostnaði. Grunnframfærslukostnaður námsmanns í eigin húsnæði eða á leigumarkaði er samkvæmt Menntasjóði námsmanna 149.905 kr. á mánuði. Aðeins er miðað við skólaárið. Ef heildarfjárhæð námsláns er dreift yfir almanaksárið, þar með talin námshlé, er fjárhæðin 112.430 kr. á mánuði. Heildarútgjöld bíllauss einstaklings án húsnæðisliðar eru 167.096 kr. á mánuði. Með öðrum orðum, við náum ekki upp í framfærsluviðmið frá Hagstofunni um kostnað. Leiga fyrir einstaklingsherbergi á stúdentagörðum er í kringum 118.000 kr. á mánuði og staðan er því þannig nú að stúdentar geta ekki framfleytt sér án þess að vinna með námi með tilheyrandi álagi og auknum líkum á brottfalli úr námi.
Þessi staða er óásættanleg, sérstaklega þegar haft er í huga að um er að ræða lán en ekki styrk. Þess vegna viljum við leggja til að grunnframfærsla námsmanna taki mið af grunnatvinnuleysisbótum þegar um fullt nám er að ræða. Fjárhæðin geti svo skerst í samræmi við námshlutfall. Með öðrum orðum, við leggjum til að það bætist við ný grein í lögin, ný málsgrein við 2. gr. laganna sem hljóði svo:
„Framfærslulán skal ekki vera lægra fyrir hvern mánuð í 100% námi en sem nemur grunnatvinnuleysisbótum skv. 2. mgr. 33. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006.“
Við leggjum einnig til í breytingartillögum okkar, sem eru á leiðinni, að hlutfallið verði lækkað sem segir hversu mörgum einingum þarf að ljúka. Það er nefnilega þannig í fjölda námsleiða að þú ert í mjög stórum kúrsum, kúrsum sem eru kannski tíu einingar, og þar af leiðandi getur fall í einum kúrsi gert þig ólánshæfan. Við skoðuðum hvernig þetta væri á hinum Norðurlöndunum og komumst að því að viðmið um námsframvindu sem væri 12 einingar væri mun nær því sem er erlendis. Það er gert þannig að þessi tala er lækkuð, úr 44 einingum í 24 einingar. Þetta hefur að sjálfsögðu þau áhrif að lánið lækkar. En það sem gerist er að þú tapar ekki öllu láninu, sem er mjög mikilvægt. Við erum einnig með tillögu um að hægt sé að færa einingar meira á milli anna. Það kemur sér vel fyrir þau sem þurfa að taka sér frí á ákveðnum önnum. Við gerum ráð fyrir því að hægt sé að flytja allt að 60 einingar milli anna, ekki þó allar 60 á einni önninni heldur svona 10 einingar á hverri önn. Við leggjum einnig til að hægt sé að fella niður námslán að hluta eða öllu leyti vegna verulegra fjárhagsörðugleika lántaka, alvarlegra og varanlegra veikinda lántaka eða annarra sérstakra ástæðna.
Þarna erum við sem sagt að reyna að gera nokkrar breytingar á þessu máli. Við leggjum einnig til að mögulegt sé að hækka styrkhlutfall lána úr 30 í 40%. Það er gert til þess að færa kerfið nær því sem tíðkast á Norðurlöndunum. Við fengum gögn fyrir nefndina um það hver kostnaðaraukinn við slíka breytingu væri en hann er um 1,2 milljarðar. Þannig að þó að þetta komi aðeins of seint fram þá er búið að kostnaðargreina þessa tillögu, bara svo hv. formaður nefndarinnar viti af því.
Það er mikilvægt í þessu að við horfum á þetta kerfi sem fjárfestingu og það getur þýtt að ríkið þurfi að leggja fram pening, rétt eins og við leggjum pening í fjárfestingar í nýsköpun. Við þurfum að hætta að hugsa alltaf um þessa skilgreiningu um skaðlausa fjárfestingu. Nei, þetta er fjárfesting. Já, við gætum þurft að borga eitthvað með henni en þetta er þó þannig að stór hluti er enn þá lán sem borgað er til baka.
Það var mikil umræða hér áðan um vaxtaþak. Ég man eftir því þegar ég var sjálfur í námi og breytt var úr námslánum sem voru verðtryggð með engum vöxtum yfir í það að vöxtum var bætt við. Það var gert með því mikla loforði og orðum um að þessir vextir færu aldrei yfir 1%, ef þetta væri verðtryggt. Við sjáum því miður annað í dag.
Það er einnig mikilvægt að horfa á það sem við höfum kallað frítekjumark eða það að gefa nemum möguleika á því að vinna með námi. Það er mikilvægt að hafa í huga að flestir nemendur vinna á sumrin. Það er því miður þannig í núverandi kerfi, þangað til breytingar á reglugerð ganga í gegn hjá hæstv. ráðherra, að ef þessir nemendur vinna á kassa í Bónus, samkvæmt þeim tölum sem gefnar eru upp á heimasíðu VR, fá þeir í dag skerðingu bara fyrir að vinna fulla vinnu að sumri til í þessa þrjá mánuði. Það lagast aðeins núna með breytingunum sem hæstv. ráðherra hefur boðað. Þau geta alla vega unnið sumarmánuðina án þess að það skerði lánin þeirra. En yfir veturinn mega þau einungis vinna sem samsvarar einum mánuði, dreift yfir alla níu mánuðina sem eftir eru. Það sem er í rauninni verið að segja er að þau geta unnið fyrir 550.000 kr. yfir níu mánaða tímabil. Því miður er sannleikurinn sá að flestir nemendur sjá fram á að vinna með námi, á kvöldin og um helgar. Þegar þau gera það þá gerist það ansi fljótt að tekjurnar þeirra skerða framfærsluna og það endar með því að það borgar sig ekki lengur að taka námslán.
Hæstv. ráðherra nefndi hér áðan að nemendum sem hafa tekið lán hefði fækkað. Það er ekki endilega, eins og hæstv. ráðherra og aðrir hafa reynt að segja, vegna þess að fólk sé að horfa á vextina og hvað það þurfi að borga til baka. Nei, það er einfaldlega þannig að ef þú vinnur sirka 50% með námi eða vinnur helgar og kvöld með námi, þú færð einhverjar tekjur inn, þá eru allar líkur á því að framfærslulánið þitt fari niður í kannski 10.000, 15.000, 20.000 kr. á mánuði. Þá er náttúrlega alveg jafn gott að sleppa við að borga það til baka með einhverjum vöxtum og þurfa að hafa áhyggjur af fjölda eininga sem þú hefur tekið og ýmislegt annað ef þú endar í því að vera hvort eð er ekki að fá neitt lán eða engar upphæðir að ráði. Þetta er eitthvað sem þarf virkilega að horfa á og skoða og rannsaka betur, hvað það eru margir nemendur sem tóku ekki námslán af því að þeir voru hreinlega komnir út úr kerfinu.
Ég sé að ég næ ekki að komast í gegnum allt, frú forseti, og myndi þiggja það að vera settur aftur á mælendaskrá.