Menntasjóður námsmanna.
Forseti. Markmið laga um Menntasjóð námsmanna er að tryggja námsmönnum jöfn tækifæri til náms með því að veita fjárhagslega aðstoð í formi námslána og styrkja. Þrátt fyrir þetta góða markmið er framfærslan allt of lág og mun færri námsmenn nýta sér námsstyrki en áætlanir gerðu ráð fyrir samkvæmt skýrslu sem háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti gaf út í lok síðasta árs. Eitthvað er því að þessu námslánakerfi þegar nemendur sjálfir sjá sér ekki hag í að nýta kerfið sem á að styðja þá í háskólanáminu. Þær mikilvægu en þó minni háttar breytingar sem ráðherra leggur til hér í dag breyta ekki þeirri einföldu og mikilvægu staðreynd að framfærsla stúdenta á Íslandi er allt of lág. Svo er það líka þannig að of margir námsmenn neyðast til að stunda mikla vinnu með námi sínu. Atvinnuþátttaka hefur eðlilega áhrif á námsframvindu enda er háskólanám full vinna í sjálfu sér. Á Íslandi vinna fleiri stúdentar með námi en í flestum öðrum Evrópulöndum. Þetta fyrirkomulag er fráhrindandi og skilar sér í lægra menntunarstigi og minni afköstum.
Eitt helsta markmiðið með lögum um Menntasjóð námsmanna var að stúdentar myndu skila sér fyrr úr námi og inn á vinnumarkaðinn. Námsframvinda mun þó ekki batna og stúdentar munu ekki skila sér fyrr út í atvinnulífið, með tilheyrandi jákvæðum efnahagslegum afleiðingum, nema þeim sé gert kleift að stunda námið af alúð og einbeitingu í stað þess að þurfa að vera stöðugt í vinnunni til að ná endum saman. Ef við hugsum aðeins um þetta þá er þetta galið. Þetta er glórulaust.
En ef við tölum aðeins um þær breytingar sem lagðar eru til hér í dag þá er verið að rýmka skilyrði fyrir námsstyrki og það er verið að leggja ábyrgðarmannakerfið af. Þetta eru góðar breytingar. Þegar kemur að rýmri skilyrðum fyrir námsstyrk er sú tillaga í raun bara fín. Það er mikilvægt að nemendur hafi ráðrúm til að skipta um skoðun og að sú ákvörðun bitni ekki á möguleikum þeirra til að nýta sér námsstyrkjakerfið. Námsstyrkjakerfið er reyndar gallað í grunninn og krafan um námsframvindu augljóslega allt of mikil því eins og ég sagði hér áðan þá nýta mun færri námsmenn námsstyrkjakerfið en vonir stóðu til. Það er ekki nóg að gera nemendum kleift að skipta um skoðun þegar kemur að vali á námsbraut heldur þarf að endurskoða styrkjakerfið í heild sinni.
Svo eru það breytingar á ábyrgðarmannakerfinu. Það er auðvitað mjög góð breyting að leggja það af. Það að ábyrgðarmannakerfið sé algerlega lagt af kemur samt ákveðnum hópi í erfiða stöðu eða virðist gera það. Ég hefði viljað varpa fram hér spurningu til dómsmálaráðherra hvort það sé ekki rétt skilið hjá mér. Í núgildandi lánareglum sjóðsins kemur fram, með leyfi forseta:
„Ábyrgðar á námsláni er krafist ef lánþegi telst ekki tryggur lántakandi. Lánþegi telst ekki tryggur lántakandi þegar hann er á vanskilaskrá, bú hans hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta […] eða ef sjóðurinn hefur þurft að afskrifa lán gagnvart viðkomandi.“
Þá er ómögulegt að veita einstaklingi lán sem er í gjaldþrotameðferð. Einnig er ljóst að þau sem hafa fengið afskrifað lán hjá sjóðnum eða LÍN eru komin vel á aldur og ekki beint markhópur námslánakerfisins. Því eru lántakendur á vanskilaskrá í raun sá hópur sem við erum að ræða hérna. Það er spurning hvort það að leggja niður ábyrgðarmannakerfið bitni á þeim sem hafa ekki fjárhagslegt bakland til að reiða sig á og eiga þess ekki kost að afla sér ábyrgðarmanns. Með því að leggja niður ábyrgðarmannakerfið að fullu er verið að útiloka þau sem ekki eru taldir tryggir lántakendur frá lántökurétti. Mér finnst rosalega mikilvægt að þetta sé skýrt. Í ljósi þess að tilgangur Menntasjóðs námsmanna er að gera öllum kleift að stunda háskólanám óháð fjárhagslegri stöðu væri eðlilegt að falla frá þessari ríku kröfu um að fjárhagsstaða viðkomandi þurfi að vera traust þegar námslán er tekið ef við erum að fella niður ábyrgðarmannakerfið, sem ég tek fram að ég er algerlega sammála að eigi að gera.
Forseti. Eins og ég sagði áðan eru þessar breytingar af hinu góða en þessi litlu viðbrögð eru í engu samræmi við alvarleika málsins, þ.e. það sem kom fram í þessari skýrslu um stöðu mála eftir að þessar breytingar voru gerðar á námslánakerfinu.
Það skiptir máli, forseti, að nemendur hafi svigrúm og getu til að sækja í það nám sem þeir brenna fyrir. En til þess þurfum við að auka hlutfall styrkja í kerfinu jafnt og þétt og draga úr því að fólk sitji uppi með lán sem borga þarf af í áratugi. Það þarf líka að hækka þessar upphæðir þannig að það sé hægt að lifa á þessum styrkjum og lánum. Einhver skynsamlegasta fjárfesting sem stjórnvöld geta ráðist í er að stytta skuldahalann sem stúdentar taka með sér út í lífið að námi loknu. Það eykur líkurnar á góðum námsárangri, tryggir raunverulegt frelsi þegar kemur að ákvarðanatöku um ýmislegt sem tekur við í lífinu þegar þú klárar nám, eins og hvaða starfi þú ætlar að taka, að þú sért ekki með skuldahala á bakinu sem hefur áhrif á það hvers konar vinnu þú velur þegar þú kemur úr námi þannig að þú sért einungis að horfa til þess hver launatékkinn er, þú hafir meira frelsi og svigrúm til að velja þér vinnu út frá þinni ástríðu og prófa þig áfram og gera mistök án þess að það kosti of mikið. Þetta eykur möguleika ungs fólks til að fóta sig í samfélaginu. Það er alvörufjárfesting í fólki og í framtíðinni. Það er skynsamleg fjárfesting.
Við þurfum nefnilega að gera stúdentum kleift að koma undir sig fótunum. Þetta viðhorf að stúdentar þurfi að þjást með námi, að stúdentar þurfi að vinna fullt starf á sumrin þannig að þeir geti sloppið með að vinna bara smávegis með fullu námi á veturna, er ótrúlega skammsýnt viðhorf. Stúdentar þurfa að hafa svigrúm til þess að geta einbeitt sér að náminu og tekið þátt í háskólasamfélaginu. Háskólanám er nefnilega ekki bara bókalestur og verkefnaskil. Það er samfélag sem á sér fáa líka. Það að verja tíma með fólki með mismunandi áhugasvið úr mismunandi deildum háskólanna, kasta á milli sín hugmyndum — þetta er allt saman ávísun á frjóa hugsun og nýsköpun sem mörg af stærstu fyrirtækjum landsins hafa sprottið upp úr. Það eru því ekki bara stúdentar sem fara á mis við margt ef þeir geta ekki tekið þátt í háskólasamfélaginu, það erum við öll, það er samfélagið allt. En ekki bara það því stúdentar eins og aðrir þrífast best ef þeir hafa tíma til að sinna sjálfum sér, áhugamálum sínum og vinum. Stúdentar eiga nefnilega líka að geta átt frítíma af því að nám er vinna eins og hefur komið hér fram. Nám er vinna. Það er fullt starf að vera í fullu námi. Auðvitað þurfa stúdentar frítíma eftir vinnudaginn sinn og um helgar, bara nákvæmlega eins og annað vinnandi fólk á vinnumarkaði þarf á að halda, annars erum við að keyra upp streitustig, við erum að sliga fólk. Við erum í raun og veru að veikja getu fólks til að geta stundað það mikilvæga nám sem það á að hafa fulla orku til að stunda.
Ef stúdentar þurfa ekki að vega og meta allar ákvarðanir sem þeir taka í tengslum við nám út frá efnahagslegum framtíðarhorfum er aldrei að vita nema aðsókn myndi aukast í fleiri námsgreinar, að innflytjendur myndu í meira mæli sækja í framhaldsnám, að fólk myndi raunverulega sjá fyrir sér framtíð þar sem það starfar við það sem það brennur fyrir, að fólk stofni fjölskyldu þegar því hentar og lifi hreinlega hamingjusamara lífi með aðeins minni áhyggjum. Fylgifiskur þess væri eflaust öflugri háskólar með stúdentum sem eru líklegri til að skara fram úr á sínu sviði og njóta námsáranna.
Forseti. Það skiptir ótrúlega miklu máli, þegar við erum að taka ákvarðanir og erum að setja lög og ramma í kringum svona mikilvæg stuðningstæki, að við séum að hugsa um keðjuverkandi áhrif inn í framtíðina og við séum ekki bara að horfa á það hvað þetta kostar núna því það er ekki hægt. Við getum ekki raunverulega sagt að við ætlum að fjárfesta í einhverju, við ætlum að fjárfesta í nemendum, nema við séum tilbúin til þess að setja fjármagn í að gera það. Það er ekki hægt að reyna að búa til ramma í kringum námslánasjóð með það að markmiði að sjóðurinn sé einhvern veginn sjálfbær og muni borga sig sjálfur því að sú hugmyndafræði mun alltaf bitna á nemendunum, á stúdentunum sem þurfa að nota þetta. Fjárfesting er fjárfesting og þegar við fjárfestum þá trúum við því að það komi til baka og ábatinn verði fyrir samfélagið allt.
Píratar hafa lagt til breytingar á ýmsum lögum til að bæta stöðu námsmanna. Þær breytingar snúa að námslánum, lágmarksnámsframvindu, fæðingarstyrk og atvinnuleysistryggingum. Það snýst um að fjárfesta í stúdentum, vitandi að við fáum það margfalt til baka.
Það er alveg ljóst að meginmarkmiði Menntasjóðs námsmanna hefur ekki verið náð. Það er ótrúlega hollt að fara í þessa skoðun og mig langar til að hrósa hæstv. ráðherra fyrir að hafa þó farið í þá vinnu og tryggt að farið væri í endurskoðun á þessum lögum og að upplýsingarnar kæmu upp á yfirborðið um hvernig þessar nýju lagabreytingar hafa virkað og hvaða áhrif þær hafa haft á líf stúdenta og á menntakerfið. Það skiptir máli að það sé gert. En það skiptir líka máli að þegar það er svona augljóst að lögin voru feill, að breytingarnar feiluðu og náðu ekki markmiðum sínum þá á auðvitað ráðherra að bregðast strax við því. Það er það sem vantar hér því að viðbrögðin núna eru of smá og mér finnst þau í raun gera lítið úr vandanum. Ég átta mig á því að heildarendurskoðun tekur tíma. En þetta snýst líka um einhvers konar forgangsröðun á verkefnum og þetta skiptir máli. Auðvitað þarf að bregðast strax við. Það þarf að grípa nemendur og það þarf að gera nauðsynlegar breytingar á Menntasjóði námsmanna sem skila raunverulegum árangri. Það kostar pening. Það gerir það. Að ná árangri í þessum málaflokki mun kosta pening. En það er varla til skynsamlegri fjárfesting en stuðningur við námsfólk vegna þess að hún er svo gríðarlega arðbær, hún er svo gríðarlega mikilvæg inn í framtíðina. Það er svo augljóst að við ættum ekki að þurfa að ræða það.