154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

Menntasjóður námsmanna.

935. mál
[19:24]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég fagna þessum breytingum og tel að öll skref sem við stígum til að rétta kúrsinn fyrir námsmenn séu af hinu góða. Við sem þekkjum það af eigin reynslu að reyna að lifa af námslánum, þurfa jafnvel að fá aðstandendur til að skrifa upp á námslánin, vitum hverju það getur valdið og þekkjum óttann við þann fjárhagslega vanda sem komið getur til ef námsárangurinn næst ekki eða ef ákveðið er að skipta um nám. Því er mikilvægt að við séum alltaf að meta stöðuna, endurskoða og bæta stöðu námsmanna í hvívetna.

Í nýrri skýrslu um Menntasjóð námsmanna kemur fram að heildarlög um sjóðinn, sem sett voru árið 2020, hafi falið í sér umtalsverðar breytingar á námslánakerfinu. Sumar þeirra hafa verið af hinu góða fyrir námsmenn en nauðsynlegt er að breyta lögunum til að markmiðsákvæði um jöfn tækifæri til náms náist. Ungt fólk er ekki að nýta sér sjóðinn í þeim mæli sem æskilegt væri og nú er staðan sú að margir telja betra að vinna með námi en að stóla á Menntasjóð námsmanna. Það er auðvitað bagalegt.

Ég hef af þessu áhyggjur við þessar breytingar sem stefnt er að með frumvarpinu. Úrbæturnar eru af hinu góða en það er mikilvægt að halda því á lofti að tryggja verður með öllum ráðum að lánþegar í félagslega viðkvæmri stöðu verði ekki útilokaðir frá námi með takmörkuðu aðgengi að Menntasjóði námsmanna. Það er mikilvægt að öll sitji við sama borð og að fólk hafi raunhæfa möguleika á að nýta sér námsstyrkina.

Ég tek að þessu leyti heils hugar undir með hv. þm. Halldóru Mogensen, sem var í pontu á undan mér, varðandi stöðu fólks sem hefur verið í skuldavanda, hefur lent í einhvers konar fjárhagslegum vandræðum. Við verðum einhvern veginn að gera kerfið okkar þannig — eins og kom fram í máli hv. þingmanns þá erum við ekki bara að fjárfesta í þessum einstaklingum heldur er það svo dýrmæt fjárfesting fyrir allt samfélagið að fólk geti leitað sér menntunar, látið drauma sína rætast, komið út á vinnumarkaðinn og það er dýrt fyrir samfélagið að halda fólki frá námi.

Ég hlakka til að fá þetta mál til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd og geri ráð fyrir að við förum vandlega yfir málið frá öllum sjónarhornum og ég mun leggja á það áherslu að við hugum að jafnræði, við hugum að því að allir einstaklingar sem sækja nám hafi til þess sömu forsendur.

Að lokum, ég ætla nú bara að hafa þetta stutt, langar mig líka að koma inn á það að íslenskt samfélag hefur breyst gríðarlega mikið á undanförnum áratugum. Ég er nú komin á miðjan aldur og það þótti ekkert óeðlilegt þegar ég var í menntaskóla t.d. að allir ynnu með námi. Staðan er allt öðruvísi í dag. Það eru mjög einkennileg skilaboð til unga fólksins okkar þegar það kemur í háskóla að þá sé miklu vænlegri kostur fyrir þau að vinna með námi, þau sem eru jafnvel búin að vinna með námi frá 15 ára aldri, að það sé líka leiðin til að fara í gegnum háskólann. Við eigum auðvitað að búa við þannig námsstyrkjakerfi að það sé eftirsóknarvert, að það sé gert til þess að styðja við nema á þann hátt að þeir geti einbeitt sér að náminu. Og þegar fólk er komið í háskóla er það nú gjarnan að stíga sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði, er að eignast maka og börn og það er allur gangur á þessu og það að þurfa að vera í fullu námi og fullri vinnu til að framfleyta sér og fjölskyldu sinni bitnar auðvitað á fjölskyldunni líka og kemur fólki kannski á þann stað að þegar það kemur út á vinnumarkað að loknu námi þá er það örmagna. Það er ekki gott veganesti fyrir lífið að vera búinn að klára sig áður en þú tekur svo til starfa við það sem þig hefur dreymt um.

Ég legg áherslu á að það er alltaf mikilvægt að við séum að endurskoða stöðuna. Margt er gott og gagnlegt í þeim breytingum sem hér eru undir og hafa verið gerðar á undanförnum árum. En við megum aldrei sofna á verðinum eða halda að nú sé komin einhver lokalausn í málinu af því að bæði breytist samfélagið og við erum með aðrar væntingar og gerum aðrar kröfur og við þurfum alltaf að vera meðvituð og uppfæra okkar regluverk í samræmi við það.