154. löggjafarþing — 95. fundur,  15. apr. 2024.

Menntasjóður námsmanna.

935. mál
[19:32]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og fyrir að rifja upp göngu mína til æðri menntunar sem hófst frekar seint á lífsleiðinni. Ég held að það sé ekki gagnlegt fyrir okkur að vera að velta því fyrir okkur hvað verður ef það verða kosningar, hvað ef þetta verður kosningavetur þannig að ráðherra eigi þá ekki að stefna að endurbótum. Ég hef þá trú, og ég sé það endurspeglast í þessum sal, einmitt í þessu máli í dag, að fólk úr ólíkum flokkum, í stjórn og stjórnarandstöðu, sé sammála um að það þurfi að gera betur. Það þarf að ganga lengra til að styðja við námsmenn og þeirra stöðu. Ég ætla nú bara í minni bjartsýni — hvort sem það næst því auðvitað taka svona mál langan tíma, annað væri óeðlilegt af því það er líka flókið að breyta kerfum sem fólk er statt inni í. Það ætti ekki að vera gert að illa ígrunduðu máli. Og óháð því hvort það verða kosningar eða ekki kosningar og hver situr hvar eftir kosningar, hvenær sem þær verða, þá vil ég trúa því að við höldum áfram á þeirri vegferð að vinna að betri stöðu námsmanna þegar kemur að Menntasjóðnum sérstaklega.