154. löggjafarþing — 96. fundur,  16. apr. 2024.

varamaður tekur þingsæti.

[13:31]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá formanni Flokks fólksins um að Jakob Frímann Magnússon, 8. þm. Norðaust., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista flokksins í kjördæminu, Katrín Sif Árnadóttir.

Katrín Sif Árnadóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.