154. löggjafarþing — 96. fundur,  16. apr. 2024.

dómur Mannréttindadómstóls Evrópu.

[13:35]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson) (um fundarstjórn):

Forseti vill geta þess af þessu tilefni að af hálfu forseta hefur þegar verið óskað eftir því að skrifstofa Alþingis framkvæmi greiningu á þeim dómi sem hér um ræðir og verður sú niðurstaða að sjálfsögðu kynnt þingmönnum þegar hún liggur fyrir.