dómur Mannréttindadómstóls Evrópu .
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmönnum sem hafa tekið hér til máls og vil segja að ég fagna sömuleiðis eindregið niðurstöðu Mannréttindadómstólsins í þessu átakanlega máli sem hefur leitt í ljós mikla áfellisdóma yfir íslenskri stjórnskipan. Staðan er einfaldlega grafalvarleg, það þarf ekki einu sinni að rekja það fyrir okkur hérna. Núgildandi stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, uppfyllir ekki mikilvæg skilyrði mannréttindasáttmálans um sjálfstæða, óháða dómstóla og leið borgaranna til að leita réttar síns skv. 13. gr. sáttmálans. Þetta er okkar mikilvæga verkefni. Við getum ekki látið þennan þingvetur líða án þess að stíga virk og jákvæð skref í átt að því að gera nauðsynlegar umbætur á stjórnarskránni. Það ætti öllum lýðræðislegum stjórnmálaflokkum að vera í lófa lagið að samþykkja óskoraða aðkomu dómstóla að helstu álitaefnum sem varða stjórnskipan landsins. Ég sé ekki fyrir mér hvernig hægt er, virðulegur forseti, að vera mótfallinn slíku.