dómur Mannréttindadómstóls Evrópu .
Forseti. Nú hefur Mannréttindadómstóll Evrópu gefið út falleinkunn fyrir framkvæmdarvaldið, fyrir löggjafann. Það hlýtur að vera tilefni til að líta í spegil og taka til hendinni til að efla lýðræðið okkar. En það gerist ekki nema meiri hlutinn sé til í að axla ábyrgð og sé reiðubúinn í opið og heiðarlegt samtal um að hafa lagt blessun sína yfir þessar kosningar í Norðvesturkjördæmi. Þessi niðurstaða hlýtur að kalla á endurskoðun á stjórnarskránni. Svo þætti mér fullkomlega eðlilegt að varpa því fram þegar við erum að tala um ábyrgðina og hverjar eru pólitískar afleiðingar af þessu hvort það sé ekki eðlilegt að við boðum hreinlega til kosninga.