154. löggjafarþing — 96. fundur,  16. apr. 2024.

dómur Mannréttindadómstóls Evrópu .

[13:41]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Nú er ég varaþingmaður og hef tekið sæti af og til á þessu kjörtímabili. Það vill svo til að þegar ég tek sæti þá er það mjög gjarnan þegar það er eitthvað stórt í gangi og fyrst þegar ég tók sæti þá vorum við að ræða hér einmitt um þessi kjörbréf og talninguna í Norðvesturkjördæmi. Ég bara fagna þessum úrskurði frá Mannréttindadómstólnum því að það blasti alveg við frá upphafi að þessi málsmeðferð gengi engan veginn upp. Það fólk sem fær kjör samkvæmt talningunni getur ekki fjallað um eigið kjör. Ég man hvernig umræðan var. Hér var verið að teygja þessa möguleika hingað og þangað til að reyna að fá fram þessa einu niðurstöðu. Það blasir við að við erum með stjórnarskrá sem byggir á konungsveldi og það rammar inn allt ferlið og við getum ekki haldið því ferli þannig lengur.