154. löggjafarþing — 96. fundur,  16. apr. 2024.

dómur Mannréttindadómstóls Evrópu .

[13:44]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (um fundarstjórn):

Forseti. Það eru blendnar tilfinningar gagnvart þessum dómi Mannréttindadómstóls Evrópu sem hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki einungis gangi fyrirkomulagið hér á landi gegn mannréttindasáttmála Evrópu, líkt og hv. þm. Logi Einarsson orðaði það, heldur í raun að stjórnarskrá lýðveldisins Íslands standist ekki mannréttindasáttmála Evrópu. Dómstóllinn kemst að þeirri niðurstöðu einróma að okkar kerfi, sem byggt er á stjórnarskránni okkar og ritað er í stjórnarskránni frá 1944, brjóti á rétti fólks til frjálsra kosninga og rétti til að leita réttar síns. Þetta sýnir það svart á hvítu sem við höfum talað fyrir núna um árabil; stjórnarskráin var tekin upp hér, hún var tekin upp til bráðabirgða, byggð á stjórnarskrá konungsveldis. Þessu ákvæði, þar sem Alþingi staðfesti sjálft eigin kosningu, í konungsveldi er því ætlað að tempra vald konungs sem fór þá þar með dómsvaldið. (Forseti hringir.) Það er augljóst að þessi stjórnarskrá er ekki skrifuð fyrir þá stjórnskipan sem við búum við og höfum búið við allan þennan tíma.

Ég segi enn og aftur: Það eru blendnar tilfinningar gagnvart þessu (Forseti hringir.) vegna þess að auðvitað er þetta áfellisdómur yfir okkar stjórnskipan en engu að síður staðfesting á því sem við höfum verið að reyna að segja: Við þurfum nýja stjórnarskrá. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)