154. löggjafarþing — 96. fundur,  16. apr. 2024.

dómur Mannréttindadómstóls Evrópu .

[13:48]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Mannréttindadómstóllinn komst að því að síðustu kosningar hafi ekki verið löglegar, við höfum ekki farið rétt að. Þá spyr maður: Erum við þriðja flokks ríki, erum við eitthvert bananalýðveldi, getum við ekki einu sinni séð til þess að kosningar séu réttar? Og svo erum við hérna, formenn, búin að eyða hundrað klukkustundum eða meira í að reyna að endurskoða stjórnarskrána sem skilaði ekki neinu. Er þetta að? Ég spyr mig hvort þessi vanhæfa ríkisstjórn sem nú er við völd muni gera nokkuð í þessu máli. Ég held ekki. Ég held að hún sé ekki hæf til þess. Ég bara vona heitt og innilega að einhver, a.m.k. næsta ríkisstjórn, muni sjá til þess að við förum að lögum og rétti, að við sjáum til þess að við getum kosið og þurfum ekki eftirlitsmenn. Er það það næsta sem við þurfum, að fá eftirlitsmenn við kosningar á Íslandi til þess að við getum farið rétt að?