154. löggjafarþing — 96. fundur,  16. apr. 2024.

dómur Mannréttindadómstóls Evrópu .

[13:50]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég fagna því að heyra hjá hv. þm. Hildi Sverrisdóttur að það sé vilji fyrir því að fara í endurskoðun á þessu. Vandamálið er bara það að ég hef heyrt þetta áður. Það er búið að tala um það áratugum saman, frá lýðveldisstofnun, að það verði að fara í heildarendurskoðun á stjórnarskránni. Það hefur ekki verið gert. Það hefur ekki vantað vinnuna, það hefur farið ómæld vinna hjá alls konar aðilum í að endurskoða þetta án þess að það skili raunverulega neinu, án þess að það hafi skilað því að við fáum hér stjórnarskrá sem gengur upp, að við fáum hér ákvæði sem við getum stutt okkur við í kosningum þegar það koma upp álitaefni í stað þess að skilja okkur eftir í súpunni. Eins og gerist núna með þessum úrskurði þá sitjum við í súpunni með niðurstöðuna sem er því miður til skammar fyrir landið. Það er til skammar fyrir okkur að við getum ekki klárað þetta betur.