ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.
Herra forseti. Það vakna náttúrlega ýmsar spurningar þegar við höldum áfram að reyna að losa okkur við gullgæsirnar, þær sem í rauninni hafa skilað inn í ríkissjóð tugum milljarða króna á undanförnum árum. Ég velti því fyrir mér núna þegar kemur að því að ráðast í þriðju söluna á Íslandsbanka hvernig sagan hefur skrifast um það þegar við erum að selja bankana okkar. Hvernig gekk það nú aftur þegar við vorum að einkavæða bankana fyrir síðasta efnahagshrun? Hvernig var útreiðin sem þjóðin þurfti að takast á við í kjölfarið á því? Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra: Er betra að fá 50 milljarða kr. í einskiptisaðgerð einu sinni og hálshöggva þá gullgæsina í rauninni og hirða engin frekari gullegg frá henni, eða að fá hugsanlega frá þessari gullgæs 20 milljarða á ári í allnokkuð mörg ár, kannski bara rosa mörg ár? Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra: Veit hann hvað Íslandsbanki hefur greitt mikið í arðgreiðslur til íslenska ríkisins á síðustu fimm árum og hver hagnaður Íslandsbanka hefur verið fyrsta ársfjórðung þessa árs?