ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.
Virðulegur forseti. Ég er nú ekki með það í kollinum hver samanlagður arður Íslandsbanka hefur verið síðastliðinn fimm ár. En ég ætla að ítreka það að það er ekki bara verið að spá því hér að einhvern tímann í framtíðinni eigi fjármálakerfið eftir að lenda í vandræðum eins og gerist reglulega — úti um allan heim eru fjármálafyrirtæki sem lenda reglulega í vandræðum og ríkið þarf að hlaupa undir bagga með einhverjum tilteknum hætti — heldur mætti líka horfa til fortíðar þegar allir bankarnir voru ríkisbankar og gengu ekkert sérstaklega vel. Arðgreiðslurnar voru ekki miklar og það þyrfti jafnvel að hlaupa undir bagga með þeim. (Gripið fram í.) Þannig að á sama hátt, virðulegi forseti, og niðurstaða hefur verið á Norðurlöndunum um að það sé full áhættusamt að halda svo stórum hluta af fjármálakerfinu í eigu ríkisins þá erum við að fylgja því fordæmi og selja hér hluta af því eignarhaldi til almennings og fagfjárfesta.